• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Spillingin við stýrið

Spillingin við stýrið

Fréttin birtist á fréttavefnum Þjóðólfur.is

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2025
in Innlent
A A
0

Svikin við þjóðina auðvelduð með uppleggi fyrri ríkisstjórnar

Hroki, ofstopaleg viðbrögð við einföldum spurningum blaðamanna, sniðganga stjórnarandstöðunnar við birtingu þingmálaskrár, óhæfi þingmanna að úrskurða í eigin sök sbr. úrskurð Dags B. um niðurstöðu kosninganna ásamt hagsmunum trillukarlsins Sigurjóns Þórðarsonar sem ekki vill sleppa sínum hag við strandveiðar og gefur það ekki einu sinni upp í hagsmunaskrá Alþingis…“ Segir á fréttavefnum Þjóðólfur.is :

Samanlagt gefur þetta sýn á starfshætti valkyrjanna sem munu nota völd sín til að keyra yfir þjóðina með skaðræðisákvörðunum eins og samþykki bókunar 35. Með þeirri samþykkt verður endanlega gengið frá lýðræðislegum möguleikum Íslands gagnvart yfirdrottnun ESB, því þegar til ágreinings kemur, þá verða lög ESB ætíð æðri, hvað svo sem stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir.

Spillingin við stýrið

Gamalt vín á nýjum belg segja margir sem er rétt og stór hluti þingmála er fjarstýring frá Brussel. Eiginlega er það blekkingarleikur hins háttvirta Alþingis að hringla með lög og reglur þannig að það líti út eins og þingmenn sinni gríðarlega mikilvægum og erfiðum störfum. Þessi ríkisstjórn mun setja spillinguna í æðra veldi og með þeim töktum sem þegar hafa komið fram má búast við því að markmið Alþjóðasambands sósíalista sem Samfylkingin er aðili að, um ritskoðun verði sett á oddinn.

Ný hrunstjórn lítur dagsins ljós

Heildarlög í loftslagsmálum boðar áframhaldandi sóun verðmæta hart stritandi landsmanna, peningunum er fleygt út í vindinn. Undirlægjuháttur við ólýðræðislegar alþjóðastofnanir er forkastanlegur og þjónar ekki hagsmunum Íslands. Ísland á að gæta sjálfstæðis lýðveldisins og segja sig úr heimskulegum bábiljum eins og Parísarsamkomulaginu, fölskum mannréttindasamtökum og einkafyrirtækjum fákeppnisaðila lyfjarisa eins og WHO. Þessi ríkisstjórn gengur í þveröfuga átt og mun keyra Ísland í efnahagslegt hrun með brjálæðisvindmylluverkefnum og grænum umskiptum.

Ísland verður hluti af sjálfsmorði ESB

Á þeim vettvangi fá valkyrjurnar góðan stuðning hamfaradeildar ESB sem eru að fremja sjálfsmorð á bílaiðnaði Evrópu og drepa velferð aðildarríkjanna með kolrangri orkustefnu. Það eina sem Ísland fær með tengingunni við ESB sem Þorgerður Katrín ætlar að rista á legstein lýðveldisins er hraðferð á brautinni ofan í hyldýpi fátæktar og þrælkunar almennings.

Það versta við þetta er að Svikarar Sjálfstæðisstefnunnar, SS íslensku þjóðarinnar í fyrri ríkisstjórnum, hafa búið um og hitað upp rúmið fyrir valkyrjurnar svo þær geti lagt sig þægilega á útbreidda sængina.

Þessi ríkisstjórn sýnir stolt sitt í að starfa sem skósveinn Evrópusambandsins.

Planið er að troða Íslandi með góðu eða illu í ESB

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    65 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?