• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Húsnæðismál: Skipu­lagður skortur

Hert skilyrði vegna skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis

Rekstrarleyfi fyrir gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis gerð tímabundin

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Í frumvarpinu eru tillögur sem ætlað er að mæta áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnvægi á húsnæðismarkaði til að fleiri íbúðir nýtist sem heimili. Frumvarpið er jafnframt hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar á húsnæðismarkaði.

Til að ná framangreindu markmiði eru í frumvarpinu eftirfarandi efnisbreytingar:

  • Hert skilyrði skammtímaleigu (heimagistingar)Lagt er til að afmarka skráningarskylda heimagistingu við eina eign einstaklings (lögheimili) innan þéttbýlis. Einstaklingi verður eftir sem áður heimilt að leigja út aðra eign utan þéttbýlis sem er í eigu hans, t.d. sumarbústað. Þá mega samanlagðar heildartekjur vegna útleigðu eignanna eftir sem áður ekki fara yfir 2 m. kr. á ári, né útleigðar gistinætur vera fleiri en 90, líkt og verið hefur.

    Samkvæmt gildandi lögum er einstaklingi heimilt að leigja út tvær eignir undir skráningarskylda heimagistingu, þ.e. lögheimili sitt og eina aðra fasteign í sinni eigu (innan eða utan þéttbýlis).

  • Rekstrarleyfi fyrir gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis gerð tímabundinMeð frumvarpinu er lagt til að tímabinda þegar útgefin rekstrarleyfi til gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis, til fimm ára í senn, en samkvæmt gildandi lögum eru umrædd rekstrarleyfi ótímabundin.

    Verði breytingartillagan að lögum, munu umrædd rekstrarleyfi halda gildi sínu í fimm ár frá gildistöku laganna. Að þeim tíma liðnum, þ.e. 1. janúar 2031, munu umræddir rekstraraðilar þurfa sækja um nýtt rekstrarleyfi sé ætlunin að halda áfram rekstri. Fjöldi umræddra rekstrarleyfa til gististaða í íbúðarhúsnæði eru tæplega 400 af þeim 2.085 rekstrarleyfum sem eru virk á landsvísu.

  • Heimild fyrir miðlun upplýsinga vegna eftirlits frá ríkisskattstjóra til sýslumanns

    Til að efla eftirlit sýslumanns með skráningarskyldri heimagistingu er lagt til að sýslumaður fái heimild til að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum hjá ríkisskattstjóra, tekjur og önnur atriði sem kunna að skipta máli vegna eftirlits sýslumanns með skráningarskyldri heimagistingu.

    Með breytingartillögunni er ekki opnað á almenna gagnamiðlun milli sýslumanns og ríkisskattstjóra. Upplýsingabeiðnir sýslumanns munu afmarkast við einstaka mál þar sem sýslumaður hefur uppi rökstuddan grun um að aðili sem stundar skráningarskylda heimgistingu hafi gerst brotlegur.

Ætla má að breytingin muni flýta málsmeðferð og rannsókn sýslumanns. Einnig auðvelda sönnun í einstaka málum sem mörg hver flokkast undir auðgunarbrot. Þrátt fyrir að dregið hafi um 30% úr leyfislausri skammtímaleigu undanfarin sjö ár, áætlar sýslumaður engu að síður að um 50% af skammtímaleigu fari enn fram án skráningar eða tilskilinna leyfa. Verði breytingin að lögum má ætla að hún hafi ákveðinn fráfælingarmátt í för með sér.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?