• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

Fer fram á allt að 70% framlegð í Fríhöfninni

Þýzka fyrirtækið Heinemann mun taka við rekstri Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2025
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Þýzka fyrirtækið Heinemann mun taka við rekstri Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í vor, eftir að hafa orðið hlutskarpast í útboði sem opinbera hlutafélagið Isavia stóð fyrir. Í fréttatilkynningu, sem gefin var út eftir að gengið var frá samningi Isavia og Heinemann, var honum fagnað af hálfu framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA skrifar

„Þetta var allt gert til að tryggja ávinning umfram núverandi fyrirkomulag. Þessi breyting mun skila ávinningi fyrir farþega, flugvöllinn og samfélagið í heild. Við erum að auka tekjur flugvallarins verulega,“ var haft eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni.

Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli er einn mikilvægasti – og oft mikilvægasti – útsölustaður margra minni og meðalstórra framleiðslufyrirtækja á Íslandi, til dæmis snyrtivöru-, sælgætis- og áfengisframleiðenda. Íslenzkar vörur voru 30% af veltu Fríhafnarinnar árið 2023 og margar af söluhæstu vörum Fríhafnarinnar koma frá minni og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi.

Fallegt tal um samfélagsábyrgð
Samkvæmt útboðsgögnum, sem Isavia hefur afhent Félagi atvinnurekenda, var skýrt í útboðsferlinu að áfram ætti að gera vörum af þessu tagi hátt undir höfði í Fríhöfninni þótt skipt yrði um rekstraraðila. Þannig kemur fram í útboðslýsingunni að það sé afar mikilvægt að mati Isavia að vöruframboð Fríhafnarinnar ýti undir „tilfinningu fyrir staðnum“. Á Íslandi sé rík hefð fyrir skapandi framleiðslu og tækifæri til að halda á lofti vönduðum vörum frá framleiðendum um allt land í Fríhöfninni, enda sé hún „búðargluggi“ fyrir þessa framleiðendur. Það sé mikilvægt, jafnt fyrir þarfir íslenzkra og erlendra viðskiptavina, að stilla fram íslenzkum vörum og styrkja „staðartilfinninguna“.

Í útboðsgögnunum segir, í íslenzkri þýðingu: „Við höfum sérstakan áhuga á hvernig samstarfsaðilar okkar munu vinna með innlendum framleiðendum og birgjum og sýna samfélagslega ábyrgð með því að styðja minni fyrirtæki. Ennfremur erum við opin fyrir því að skoða undanþágur fyrir vaxandi innlend vörumerki sem þið kjósið að halda á lofti og innleiða á flugvellinum á samningstímanum.“ Slíkar undantekningar eru sagðar vera t.d. lækkun veltutengdrar leigu sem Heinemann greiðir Isavia.

Veruleikinn: Kröfur um að birgjar lækki verð
Isavia hefur ekki viljað afhenda FA tilboð Heinemann, þannig að við vitum ekki hvernig fyrirtækið útlistaði hvernig það hygðist styðja við minni framleiðendur. Við vitum hins vegar hvernig samskipti Heinemann við minni birgja hafa verið á undanförnum vikum, eftir að tilkynnt var í lok janúar að það fengi samninginn um rekstur Fríhafnarinnar. Heinemann hefur lagt fram stífar kröfur um gífurlega háa framlegð af vörum, allt að 70%, sem eru kjör sem ekkert verzlunarfyrirtæki í eðlilegri samkeppni myndi bjóða. Ekki stendur til að hækka verð til farþega, þannig að framlegðarkrafan þýðir að litlu framleiðendurnir verða að lækka verð sitt um tugi prósenta ef þeir vilja áfram hafa aðgang að „búðarglugganum“. Óvíst er að rekstur sumra þessara fyrirtækja þoli slíka verðlækkun. Við þetta bætast kröfur um 90 daga greiðslufrest og að fyrirtækin taki þátt í starfsmannakostnaði, ef þau vilja að starfsfólk Fríhafnarinnar hafi einhverja þekkingu á vörum þeirra.

Heinemann misbeitir ráðandi stöðu
Það er ekki eins og fyrirtækin, sem í hlut eiga, geti snúið sér til annarra verzlana á Keflavíkurflugvelli og samið við þær um að selja vörur sínar með hagstæðari kjörum. Samningar Isavia leyfa ekki hverjum sem er að selja t.d. snyrtivörur eða áfengi á flugvellinum. Heinemann er í raun að nýta þá ráðandi stöðu, sem íslenzka ríkið hefur afhent félaginu með því að ríkisfyrirtækið Isavia semji við það um rekstur Fríhafnarinnar og þar með einkarétt á sölu sumra vara. Framleiðendur stórra, alþjóðlegra vörumerkja eru í allt annarri stöðu gagnvart Fríhöfninni – sala þeirra á Keflavíkurflugvelli er brotabrot af heildarveltunni. Í tilviki lítilla og meðalstórra íslenzkra fyrirtækja er Fríhöfnin oft stærsti útsölustaðurinn og jafnvel kemur meirihluti veltunnar þaðan í sumum tilvikum.

Í þessu samhengi er rétt að rifja upp að Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað skilgreint fríhafnarverzlun á Keflavíkurflugvelli sem sérstakan markað. Heinemann er augljóslega ráðandi á þeim markaði. Enginn gerir neina kröfu til þess að íslenzkir framleiðendur fái einhverja sérmeðferð hjá Fríhöfninni, en það er hægt að gera þá kröfu að Heinemann misbeiti ekki markaðsráðandi stöðu sinni. Samkeppnisyfirvöld ættu að hafa augun á því sem fram fer þessa dagana í samskiptum fyrirtækisins og birgja Fríhafnarinnar og grípa inn í ef þörf krefur.

Ábyrgð stjórnvalda
Íslenzka ríkið ber líka ábyrgð á því hvernig kaupin gerast á eyrinni á Keflavíkurflugvelli. Fyrir rúmum þremur árum beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til stjórnvalda um starfsumhverfi Isavia og samkeppnisaðstæður tengdar Keflavíkurflugvelli. Þar var meðal annars mælzt til þess að settar yrðu reglur um framkvæmd og efni útboða og sérleyfissamninga sem vörðuðu úthlutun á aðstöðu á eða við flugvöllinn, og þar yrðu samkeppnissjónarmið höfð að leiðarljósi. Skemmst er frá því að segja að fjármála- og efnahagsráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, sem málið snýr að, hafa ekkert aðhafzt og engar reglur hafa litið dagsins ljós. Ný ríkisstjórn segist vera hlynnt samkeppni og hagstæðum rekstrarskilyrðum fyrirtækja og ætti að taka þetta mál upp af krafti.

Auknar tekjur úr vösum birgja Fríhafnarinnar
Í útboðsgögnum Isavia er lögð rík áherzla á að Fríhöfnin bjóði farþegum, sem fara um Keflavíkurflugvöll, áfram samkeppnisfært verð. Það er vel. En í ljósi ofangreinds blasir við að hinar „verulega auknu tekjur“ Isavia af samningnum við Heinemann koma þá úr vösum birgja Fríhafnarinnar, þar á meðal lítilla og meðalstórra innlendra framleiðenda – með viðkomu í hagnaði þýzka stórfyrirtækisins. Ávinningur þessa hluta íslenzks samfélags virðist ætla að verða neikvæður og enn sem komið er fer mjög lítið fyrir hinni „samfélagslegu ábyrgð“ sem Heinemann er ætlað að sýna gagnvart minni fyrirtækjum. Vonandi endar það ekki þannig að litlu fyrirtækin leggi upp laupana og „staðartilfinningin“ verði eftir því.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    220 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?