• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nýr dómur vegna Wolt

WOLT

Nýr dómur vegna Wolt

Nýr dómur: Sendlar Wolt í Noregi eru í ráðningarsambandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. apríl 2025
in Erlent, Fréttir
A A
0

Þann 4. mars sl. kvað undirréttur á Oslóarsvæðinu í Noregi upp afar mikilvægan dóm um réttarstöðu þriggja einstaklinga sem starfað hafa undanfarið sem sendlar fyrir fyrirtækið Wolt þar í landi. Dómurinn staðfestir í öllum aðalatriðum að umræddir einstaklingar séu í ráðningarsambandi í skilningi norskra réttarheimilda. (sjá frétt frá systursamtökum ASÍ í Noregi)

ASÍ

Aðdragandi málsins er sígildur fyrir sambærileg mál sem fallið hafa víða í Evrópu. Nánar tiltekið er um að ræða þrjá einstaklinga sem starfað hafa hjá Wolt á Oslóarsvæðinu um nokkurt skeið við að sendast með mat og annað sambærilegt til viðskiptavina. Umræddir einstaklingar töldu skilmála Wolt til handa sendlum ekki vera í samræmi við norska löggjöf um réttindi og starfsumhverfi starfsfólks.

Kröfur þeirra um leiðréttingu á kjörum sínum var hafnað af hálfu Wolt og var því fyrir tilstilli viðeigandi stéttarfélaga höfðað mál gegn Wolt til viðurkenningar á því að umræddir einstaklingar séu í ráðningarsambandi í skilningi norskra laga. Nú liggur fyrir niðurstaða í undirrétti og er hún nokkuð afdráttarlaus á þann veg að umræddir sendlar séu í ráðningarsambandi og í því ljósi skuli þeir njóta sambærilegra kjara og réttinda og aðrir á norskum vinnumarkaði. Niðurstaða dómsins er sú að kaup og kjör þremenninganna skuli því leiðréttast aftur í tímann og samtals var Wolt dæmt til að greiða þeim ýmsar launaleiðréttingar sem nemur 900.000 norskum krónum (tæplega 11.000.000 íslenskar krónur).

Ljóst er að dómurinn hefur mikla þýðingu fyrir starfandi Wolt-sendla í Noregi. Reynslan sýnir þó líka að viðbrögð gigg-fyrirtækja við dómum sem eru óhagfelldir þeim eru þau að gera einhliða breytingar á samningsskilmálum til að kasta rýrð á fordæmisgildi dóma. Í öllu falli er þó ljóst að niðurstaðan gefur sendlum og stéttarfélögum í Noregi byr undir báða vængi í baráttunni fyrir sanngjörnu gigg-hagkerfi.

ASÍ mun fylgjast með þróun mála næstu misserin í Noregi. Vonir þar ytra standa til þess að niðurstaða dómsins muni loks ýta Wolt að kjarasamningsborðinu að einhverri alvöru. Ljóst er að hagfelld niðurstaða fyrir félaga okkar í Noregi mun hafa áhrif til hins betra hér á landi en sérfræðingar ASÍ hafa áður gagnrýnt ábyrgðarleysi fyrirtækisins gagnvart sendlunum sem vinna verkin.

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?