Viðskiptablaðið vekur athygli á að tæknifyrirtækið App Dynamic sem er starfrækt á Íslandi hyggist greiða öllum starfsmönnum sínum milljón krónur í jólabónus þetta árið
Þetta er í annað sinn sem fyrirtækið greiðir veglegan jólabónus til starfsmanna. Þá segir jafnframt ,,Pratik Kumar, stofnandi og eigandi App Dynamic, segir að árið 2024 hafi verið jafnvel enn sterkara en árið 2022. Félagið velti 1,4 milljörðum króna árið 2024 og jókst um 52% frá fyrri ári. Félagið hagnaðist um 470 milljónir í fyrra, samanborið við 137 milljónir árið 2023.“ Hægt að lesa ítarlega frétt í Viðskiptablaðinu um þetta fyrirmyndar fyrirtæki.
Umræða

