• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 27. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

Þúsundir barna á Íslandi þjást um jól og áramót

Foreldraútilokun er alvarlegt andlegt ofbeldi gagnvart börnum og er lýðheilsuvandamál

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
,,Tálmunarofbeldi er ofbeldi. Punktur. Það felst í því að gera barn afhuga eða ófært um að eiga samband við annað foreldri, yfirleitt föður. Börnin eru kerfisbundið heilaþvegin, haldið í fjarlægð frá þeim sem þau elska, þar til tengslin rofna. Þetta er ekki ágreiningur milli fullorðinna, þetta er kerfisbundið andlegt ofbeldi gegn barni“, segir í aðsendri grein fyrr á árinu sem og:

Afleiðingarnar eru skelfilegar: Börnin læra að hafna hluta af sjálfum sér, finna til missis, sorgar sem og brenglunar á lífi sínu og bera sárin á sál sinni, inn í fullorðinsárin. Rannsóknir sýna að börn sem alast upp við slíkar aðstæður eru líklegri til að glíma við kvíða, þunglyndi, vantraust í nánum samböndum og skerta sjálfsmynd. Þau missa jafnframt þá ómetanlegu reynslu að eiga báða foreldra sína og þeirra fjölskyldur í lífi sínu.

Hvað gerir barnavernd?

Og hvað gerir barnavernd? Ítrekað er bent á tálmanir í fjölmiðlum, feður segja frá því að dómaraúrskurðir séu virtir að vettugi og fleira en barnavernd horfir á. Hún kallar þetta „samskiptaörðugleika“ eða „deilu foreldra“ í stað þess að horfast í augu við að þetta er ofbeldi gegn barni. Með aðgerðarleysinu verður barnavernd samsek þeim (oftast móður) sem beitir grófu tálmunarofbeldi.

Hvar er sérfræðiþekking starfsmanna á þessu sviði? Hún er ekki til staðar, frekar en hjá öðrum stofnunum í kerfinu og nær það þekkingarleysi alla leið til dómstóla. Hvernig er hægt að tala um barnavernd ef hún ver ekki barnið fyrir því að vera tekið úr tengslum við annað foreldri og þeim skelfilegu afleiðingum sem barnið verður fyrir í slíku ofbeldi til lífstíðar?

Það þarf að segja þetta hreint út: Barnavernd á Íslandi styður tálmunarofbeldi með þögn og aðgerðaleysi. Og á meðan bera börnin örin á sál sinni fyrir lífstíð í boði svokallaðarar barnaverndar.

Það er ekki nóg að tala um réttindi og velferð barna. Það þarf að tryggja þau í verki!

Félagasamtök um foreldrajafnrétti skrifa eftirfarandi færslu í dag á vef sinn:

Um jól og áramót þjást mörg börn og foreldrar vegna foreldraútilokunar

Foreldrajafnrétti

Foreldraútilokun er alvarlegt andlegt ofbeldi og lýðheilsuvandamál.

Þegar barn er hindrað í að eiga samskipti við annað foreldri sitt verður það fyrir tengslarofi sem getur haft djúpstæð áhrif á sjálfsmynd, andlega heilsu og þroska barnsins. Rannsóknir sýna að slíkt mótlæti í æsku getur haft langvarandi afleiðingar, langt fram á fullorðinsár.

Um jólin, þegar börn eiga að finna fyrir öryggi, verða þessi sár oft djúpstæð.

Börn eiga rétt á báðum foreldrum sínum.

Tálmun foreldris varði sektum eða allt að fimm ára fangelsi

Barnsrán, rangar sakargiftir, fjárkúganir og fleira

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Bankarnir hóta viðskiptavinum

    628 deilingar
    Share 251 Tweet 157
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    398 deilingar
    Share 159 Tweet 100
  • Ætlar að hafa mök við 1000 karlmenn

    143 deilingar
    Share 57 Tweet 36
  • Lífeyrissjóðir hrynja með Samherja – Tvöfalt hærri upphæð en neyðarlánið í hruninu

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Þúsundir barna á Íslandi þjást um jól og áramót

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?