Sú stefna sem fylgt er í Svíþjóð hefur þær afleiðingar sem líkja má við hreint þjóðarmorð á Svíum. Þetta segir álitsgjafinn og fyrrverandi þingmaður Móderata, Hanif Bali, í nýjum þætti hlaðvarpsins „Síðasta kvöldmáltíðin.“ – „Ef Tyrkland hefði þessa stefnu í Kúrdistan, þá hefðum við kallað það þjóðarmorð.“

Hanif Bali telur að sænska ríkið hafi um langt skeið fylgt stefnu sem vinnur gegn möguleikum Svía til að mynda fjölskyldu og þróa samfélagið áfram.
Samtímis hafa stjórnmálamennirnir flutt inn milljónir innflytjenda frá þriðja heiminum sem sósíaldemókratar vilja blanda við Svía með nauðungarflutningum innanlands.
Að sögn Hanif Bali er útkoman sú að næsta kynslóð Svía hefur verið „mulin niður“ og hin hefðbundna sænska millistétt er að hverfa. Hann segir:
„Ef litið er á einstakar aðgerðir, hvernig sænska ríkið hefur komið fram við Svía, þá væri það líklega skilgreint sem þjóðarmorð.“
Bali lýsir hvernig margar pólitískar ákvarðanir samhliða innflytjendastefnunni eiga sinn þátt í ástandinu sem hefur myndast. Bendir hann sérstaklega á stefnuna í húsnæðismálum og regluverk sem gerir það erfitt að byggja raðhús og einbýlishús. Það hefur leitt til mikillar hækkunar íbúðaverðs sem kemur öldruðum til góða á meðan þeim yngri er haldið utan við. Bali segir:
„Það sem gerist er að fólk heldur í húsin og næsta kynslóð fær ekki aðgang að þeim.“
Hann tengir þróunina við þá staðreynd að meðalaldur kvenna sem eignast sitt fyrsta barn er núna kominn í fyrsta skipti yfir 30 ár í Svíþjóð sem er bein afleiðing af þeirri stefnu sem fylgt er. Hann gagnrýnir sænska efnahagskerfið harðlega, þar sem fjármálageirinn hagnast á kostnað venjulegs launafólks og verðbólga og hærra vöruverð bitnar sérstaklega á þeim sem eru að koma fótunum undir sig. Hanif Bali segir innflytjendahópana bjarga jafnaðarmönnum.
Verið að skipta út Svíum með nýjum íbúum
Hanif Bali bendir á að lýðfræðin hafi breyst í grundvallaratriðum vegna hins mikla innstreymis innflytjenda. Hópar með hærri fæðingartíðni hafi stækkað að miklu leyti á kostnað „sænsku millistéttarinnar.“
Í hlaðvarpinu er Balí gagnrýndur fyrir að nota hugtakið þjóðarmorð. Stjórnendur minna á þjóðarmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1948, sem meðal annars inniheldur aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir fæðingar innan ákveðins hóps.
Bali viðurkennir að hann geti ekki sannað að jafnaðarmenn hafi haft beinan ásetning um að fremja þjóðarmorð. Hann segir:
„Margt af þessu er viljandi gert. Það má taka burtu áætlunina en framkvæmdin er sú að niðurstaðan verður að það er verið að skipta út Svíum fyrir nýjan íbúa.“

