Um fimmtíu króna verðmunur er á eldsneyti, eftir því við hvaða olíufyrirtæki er verslað og hvar á landinu það er
Ódýrasta bensínið er selt hjá Costco eins og alltaf og verðið nú er 171.10 kr. og aðrar stöðvar í kring halda sínum verðum lægri en á öðrum stöðvum sem eru fjær Costco. Verðmunurinn á ódýrasta líternum og dýrasta á landinu eru 48.10 kr.
Dýrasti líterinn á landinu er hjá Olís á Hrauneyjum og er verðið þar 219,20 kr. N1 er með dýrasta eldsneytið á fjölmörgum stöðvum sínum og hæst á Hvolsvelli 216.20 kr. en hægt er að skoða öll verð og hjá öllum olífélögum hjá Gasvaktinni.is
Gasvaktin er með nýjustu verðin í rauntíma á vefnum og það getur borgað sig að skoða þau því það getur munað um 3000kr. á fulum tanki eða 12.000 kr. á mánuði sé tankað einu sinni í viku sem gerir 144.000 krónur á ári.
Hægt er að fylgjast með bestu kaupunum á eldsneyti hér og spara og nota sparnaðinn t.d. í góða helgarferð: Gasvaktinni.is
Umræða

