• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 10. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Viljayfirlýsing um uppbyggingu 108 rýma hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði

Inga Sæland, Kristján Sigurðsson og Valdimar Víðisson skála fyrir áfanganum í rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma

Viljayfirlýsing um uppbyggingu 108 rýma hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Félags- og húsnæðismálaráðherra og Vigdísarholt ehf. undirrituðu í dag samkomulag  um byggingu og rekstur nýs 108 rýma hjúkrunarheimilis í Vatnshlíð við Ásvallarbraut í Hafnarfirði. Samhliða var undirritað samkomulag milli Vigdísarholts og Hafnarfjarðarbæjar um lóðaúthlutun á svæðinu.

Nákvæm staðsetning lóðar og endanleg stærð verður ákvörðuð af Hafnarfjarðarbæ þegar deiliskipulag svæðisins liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að endurskoðun aðalskipulags ljúki næsta vor  og að lóðin verði tilbúin til framkvæmda á árinu 2027.

Mun Hafnarfjarðarbær afhenda lóðina án endurgjalds í samræmi við lög. Hafnarfjarðarbæ er þó heimilt að innheimta gatnagerðargjöld í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðaskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Vigdísarholt skal hefja framkvæmdir eigi síðar en tveimur árum eftir afhendingu.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra:

„Með þessari viljayfirlýsingu við Vigdísarholt og Hafnarfjarðarbæ erum við að senda skýr skilaboð: Við ætlum að bregðast við. Við ætlum að byggja upp. Og við ætlum að gera það í samstarfi og með hagsmuni fólksins að leiðarljósi. Ég óska Hafnfirðingum innilega til hamingju með þennan áfanga og hlakka til að fylgjast með verkefninu raungerast.“

Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts:

„Stjórnendur Vigdísarholts eru mjög spenntir fyrir þessu nýja verkefni og  uppbyggingu öflugs lífsgæðakjarna á svæðinu.  Verkefnið samrýmist vel framtíðarsýn Vigdísarholts um heildstæða og metnaðarfulla  þjónustu sem miðar að bættum lífsgæðum íbúa.  Áform Vigdísarholts fela í sér að reisa hjúkrunarheimili þar sem velferð, virðing og einstaklingsmiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi“

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri:

„Svona uppbygging snýst um öryggi, þjónustu og reisn fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra. Nú förum við af fullum krafti í skipulagsvinnuna svo lóðin verði tilbúin til framkvæmda árið 2027. Þetta er mjög mikilvægt skref fyrir Hafnarfjörð og ég fagna því að við séum komin með skýra viljayfirlýsingu um uppbyggingu hjúkrunarheimilis fyrir allt að 108 rými. Þörfin er mikil.“

Aðalskipulag og hönnun fer í fullan gang eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar og standa vonir til að framkvæmdir geti hafist á fyrri hluta næsta árs þannig að nýtt hjúkrunarheimili hefji starfsemi á árinu 2029.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ríkið afli tekna og auki velferð

    Eldsneyti hjá Costco hefur lækkað um hundrað krónur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Eyjólfur Ármannsson og kona hans eignuðust stúlku

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Drög að nýrri reglugerð um strandveiði komin í samráðsgátt

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Íslenskur sjávarútvegur á heljarþröm

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir vopnaðir byssum handteknir

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?