Aukið samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og öryggi á norðurslóðum voru meðal mála í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og utanríkisráðherra Grænlands, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.
Samstarf ríkja um öryggismál á norðurslóðum hefur fengið aukið vægi á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og ræddu ráðherrarnir þróun mála og aukin viðbúnað á Grænlandi.
„Ég fagna þéttu samráði Norðurlandanna og Grænlands um stöðu mála á okkar nærsvæði og Ísland mun áfram eiga í þéttu og nánu samstarfi við okkar bandalagsríki og leggja sitt af mörkum til öryggis og varna Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Við höfum lagt ríka áherslu á að sýna Grænlandi og Danmörku samstöðu og styðja við aukna viðveru og eftirlit á svæðinu,“ segir Þorgerður Katrín. „En á sama tíma og við ræðum leiðir til að renna styrkari stoðum undir öryggi á svæðinu er nauðsynlegt að halda áfram að styðja ötullega við varnarbaráttu Úkraínu og bregðast við þeirri langvarandi ógn sem að steðjar frá Rússlandi.“
Fundur norrænu ráðherranna var haldinn í framhaldi af fundi varnarmálaráðherra Danmerkur og utanríksráðherra Grænlands með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins fyrr í dag.

