Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra er látinn. Davíð lést á heimili sínu í gær 78 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá.
Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir.
Davíð var einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins um áratugaskeið. Hann var kjörinn í borgarstjórn 1974 og sat þar til ársins 1994, og var borgarstjóri 1982-1991. Hann var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins 1991. Sama ár var hann kjörinn inn á þing og varð forsætisráðherra og gegndi því embætti allt fram til 2004. Þá varð hann utanríkisráðherra í eitt ár 2004-2005.
Davíð sagði skilið við stjórnmálin árið 2005 og hætti sem ráðherra og sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Eftir stjórnmálin hóf hann störf við Seðlabanka Íslands og var seðlabankastjóri til ársins 2009.
Eftir störf í Seðlabankanum hóf hann starf sem ritstjóri Morgunblaðsins, og gengdi því starfi fram á síðasta dag.
Davíð hafði mikla ánægju af ritstörfum og eftir hann liggja bæði leikrit, bækur og ýmsir texta og ritgerðir. Þá vann hann einnig við útvarpsþáttagerð á Ríkisútvarpinu á árunum 1968-1975.
Eftirlifandi eiginkona Davíðs er Ástríður Thorarensen. Davíð skilur eftir sig son, tengdadóttur og tvö barnabörn.

