Fíkniefnahundurinn tók þátt í leit um borð í bát
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var áhöfn um borð í bát sem lá við smábátabryggjuna handtekin á mánudaginn eftir að lögreglan hafði rannsakað um borð bátnum.
Lögreglan í Vestmannaeyjum staðfesti við Eyjafréttir að leit hefði farið fram í bát og að fíkniefnahundurinn hefði verið lánaður.
„Ég get staðfest það að það fór fram leit í bát sem lá við bryggju í Vestmannaeyjahöfn sl. mánudag. Hlutverk lögreglu var að kanna með vegabréf áhafnar og síðan lánuðum við Tollgæslunni fíkniefnaleitarhund vegna leitarinnar.“
Umræða