• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Roundup efnið í morgunkorni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Roundup efnið Glýfosat í morgunkorni


Í frétt bandarísku umhverfisverndarsamtakanna EWG sem birtist í vikunni er skýrt frá því að virka efnið í illgresiseyðinum Roundup, glýfosat (glyphosate), finnist í mörgum þekktum matvörum, einkum í morgunkorni.
Magn glýfósats í þessum vörum er langt undir leyfilegum hámarksgildum í Evrópu. Samkvæmt áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) frá því í maí sl. stafar neytendum ekki hætta af glýfosati í matvælum á evrópskum markaði í því magni sem það finnst í matvælum.
EFSA safnar niðurstöðum úr glýfosat mælingum aðildarríkja Evrópusambandsins á hverju ári. Nýjustu niðurstöður eru frá árinu 2016 en þá voru tekin 6.761 sýni frá 26 löndum Evrópu. Glýfosat greindist yfir leyfilegum mörkum í 19 sýnum eða 0,28% sýnanna. Það greindist ekki glýfosat í 96,4% sýnanna, þ.e.a.s. glýfosat var ekki til staðar eða í svo litlum mæli að það var ekki hægt að magngreina það.

Byggt á þessum niðurstöðum gaf EFSA út áhættumat í maí 2018 um glýfosat í fæðu Evrópubúa. EFSA telur að það magn sem neytendur innbyrða með matvælum á markaði í Evrópu sé ekki skaðlegt heilsu manna.
Í rannsókn umhverfissamtakanna EWG voru tekin 45 sýni af hefðbundnum kornvörum og 16 sýni af lífrænum kornvörum. Hæstu gildin voru 1,3 ppm (1.300 ppb) af glýfosati. Öll gildi nema tvö voru undir 0,8 ppm. Skv. reglum Evrópusambandsins eru hámarksgildi 20 ppm í höfrum og 10 ppm í rúg og hveiti.
Þessi gildi gefa ekki tilefni til að vara við neyslu á þessum vörum, hvorki fyrir fullorðna né fyrir börn, eða innkalla þær af markaði út frá viðmiðum EFSA og Evrópusambandsins.
Glýfosat er leyft til notkunar á Íslandi. Umhverfisstofnun veitir markaðsleyfi og fer með eftirlit með innflutningi, dreifingu og markaðssetningu plöntuverndarvara. Árið 2016 tók Matvælastofnun þrjú sýni af innlendum kornvörum til greiningar á glýfósati. Ekkert glýfósat fannst í vörunum.
Glýfosat er virka efnið í illgresiseyðinum Roundup sem notað er við ræktun á erfðabreyttu soja- og korntegundum. Erfðabreytingin gerir plönturnar þolnar fyrir illgresiseyðinum.

Ítarefni

  • Skýrsla EFSA um varnarefnaleifar í matvælum 2016 (fjallað um glýfosat á bls. 67)
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?