• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Riða greinist aftur í Skagafirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. september 2018
in Óflokkað
A A
0

Riða greinist aftur í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Vallanesi í Varmahlíð í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2016 á bæjunum Brautarholti og Stóru-Gröf ytri. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Sýnið var tekið samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun í sláturhúsi.
Átta önnur sláturhúsasýni frá búinu voru einnig rannsökuð í sömu sendingu og reyndust neikvæð. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna eða óeðlilegra affalla. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum.
Mikill fjöldi sýna verður tekinn við komandi haustslátrun og rannsökuð með tilliti til skimunar á riðu.
Búið er í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á tuttugu búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2007. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum kringum Varmahlíð í gegnum tíðina og um þekkt riðusvæði er að ræða.
Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en í fyrra greindist eitt tilfelli á Norðurlandi eystra. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum.
Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.
Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    210 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?