Fagskrifstofur ráðuneytins verða sem hér segir:
- Skrifstofa barna- og fjölskyldumála.
- Skrifstofa húsnæðis og lífeyrismála.
- Skrifstofa vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.
Þá starfar fagskrifstofa fjárlaga sem stoðdeild þvert á allar aðrar fagskrifstofur ráðuneytisins auk Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar .
GEF/Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar er sérstök ráðuneytisstofnun sem starfar á forræði ráðuneytisins en starfar sjálfstætt og óháð ráðuneytinu að öðru leiti.
Við uppskiptingu velferðarráðuneytisins sl. áramót var ákveðið að innri starfsemi ráðuneytisins verði innt af hendi hjá heilbrigðisráðuneytinu en að félagsmálaráðuneytið kaupi þá þjónustu af heilbrigðisráðuneytinu samkvæmt þremur þjónustusamingum sem verið er að ganga frá. Þeir taka til:
- Stoðþjónustu og hlutdeild í sameiginlegum kostnaði – m.a. bókhalds og rekstrarþjónusta, launaumsjón, málaskrá, mötuneyti og húsnæði
- Þjónustu hagmála – m.a. gerð reiknilíkana og kostnaðargreiningar, framsetning tölulegra gagna og skýrslugerð og
- Þjónustu mannauðsmála – m.a. ráðgjöf og stuðning við stjórnendur í mannauðsmálum, fræðslustarf, starfsþróun, móttaka nýrra starfsmanna, innri vefur og innleiðingu breytinga.
Á næstunni verða störf hinna þriggja nýju fagskrifstofustjóra auglýstar til umsóknar.