• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 6. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Ályktun miðstjórnar ASÍ

ritstjorn by ritstjorn
1. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Verjum réttindi og kjör

Sterk verkalýðshreyfing er merki um heilbrigðan og vel skipulagðan vinnumarkað. Á samdráttar- og  krepputímum er vegið að kjörum og réttindum vinnandi fólks. Þá reynir á samstöðu verkalýðshreyfingarinnar sem aldrei fyrr. Mikill fjöldi félaga okkar er að missa vinnu eða tapa réttindum og taka á sig kjaraskerðingar. Þessa félaga okkar þurfum við að verja með sameinuðu afli okkar.
Það áfall sem á okkur dynur afhjúpar veikleika á vinnumarkaði sem endurspeglast í slæmri réttarstöðu launafólks í ótryggum og réttlitlum ráðningarsamböndum. Formlegt ráðningarsamband ásamt aðild að stéttarfélagi og réttindi skv. kjarasamningum er besta vörn sem launamaður á vinnumarkaði getur fengið. Á það reynir núna.
Alþýðusambandið hefur á undanförnum vikum unnið með stjórnvöldum og samtökum atvinnurekenda að aðgerðum sem ætlað er að minnka höggið af niðursveiflunni á heimil og fyrirtæki. En það þarf að gera betur. Atvinnuleysisbætur þurfa að hækka og það þarf að tryggja fé til virkra vinnumarkaðsaðgerða. Það þarf að tryggja afkomuöryggi hópa sem ekki falla undir lög um hlutabætur eða um laun í sóttkví. Þar eiga í hlut viðkvæmir hópar sem þarf að verja betur. Það þarf að tryggja húsnæðisöryggi. Það þarf að nýta skattkerfið með markvissari hætti til tekjujöfnunar og verja grunnstoðir velferðarkerfisins. Þá verður að tryggja að verðlag haldist stöðugt og kjör skerðist ekki vegna verðbólgu. Styrkur og mikilvægi opinbera heilbrigðiskerfisins ætti jafnframt að vera öllum ljós við þær aðstæður sem nú ríkja.
Samtök atvinnulífsins gagnrýna ASÍ fyrir að gefa ekki eftir kauphækkanir og lífeyrisréttindi við ríkjandi aðstæður og bera saman við stöðuna eftir hrunið 2008. Það er bæði rangt og villandi. Það hefur aldrei staðið á samninganefnd ASÍ að eiga samtal við atvinnurekendur og stjórnvöld um sameiginlegar lausnir. Þeir afarkostir sem Samtök atvinnulífsins stilltu upp gagnvart samninganefnd ASÍ var hins vegar hafnað af miklum meirihluta nefndarinnar eftir breitt samráð við bakland innan verkalýðshreyfingarinnar. Ábyrgðina er ekki hægt að setja  á launafólk sem nú þegar hefur orðið fyrir miklum búsifjum. Alþýðusamband Íslands mun standa vörð um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem ákveðnar hafa verið og gerir sömu kröfur til atvinnurekenda og samtaka þeirra.
Sterk verkalýðshreyfing er mikilvæg á öllum tímum en aldrei eins og í kreppu. Þá reynir á samstöðu og skýra sýn. Á slíkum stundum er mikilvægt að sjá heildarmyndina. Verja réttindi og kjör og standa dyggan vörð um velferðarkerfið. Við erum sterkari saman.
 

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Gætuð þið lifað af á þessum launum? – Launaseðill sýnir útborguð laun

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?