Samkvæmt upplýsingum viðmælanda Fréttatímans á Ísafirði, hefur ,,flensa“ verið á svæðinu undanfarið og Covid greining hefur sýnt smit. Fyrir fáum mánuðum kom upp hópsmit á þorrablóti fyrir vestan sem náði talsverðri útbreiðslu.
Covid-19 andlát á Íslandi – Yfirlit frá Landlækni
,,Andlát vegna Covid-19 hafa verið í umræðunni. Fyrst langar mig að minna á að nálgast þá umræðu af virðingu og samkennd. Alls hafa 219 manns látist hérlendis frá 2020, beint af völdum Covid-19 eða Covid-19 var meðvirkandi þáttur andláts. Andlát er flokkað sem Covid-19 andlát ef viðkomandi lést á innan við einum mánuði eftir smit og læknir skráir Covid-19 sem orsök eða sem meðvirkandi þátt á dánarvottorð.“ Samkvæmt yfirliti Landlæknis síðan í nóvember s.l.
Árin 2020 og 2021 voru töluverðar en þó mismiklar takmarkanir í gangi í samfélaginu. Bólusetning hófst í desember 2020 en gert var átak í örvunarbólusetningum veturinn 2021. Ómíkron afbrigði veirunnar, sem hefur mikla smithæfni, tók yfir af delta afbrigði í desember 2021 til janúar 2022. Jafnframt var samkomutakmörkunum aflétt í lok febrúar 2022.
Af þessum 219 andlátum voru 180 á árinu 2022. Þar af voru 129 andlát á tímabilinu febrúar-apríl og 25 létust í júlí. Líkur eru á að fjöldi andláta árið 2022 sé afleiðing af mikilli útbreiðslu á Covid-19 á þessu tímabili enda gengu þá yfir tvær stærstu bylgjur Covid-19 frá upphafi. Þess má geta að 5 Covid-19 andlát voru skráð í ágúst og september. Í alþjóðlegum samanburði er fjöldi andláta vegna Covid-19 á Íslandi árin 2020-2022 lágur miðað við mannfjölda.