Alls voru 77 mál skráð á tímabilinu 17:00 – 05:00 hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Þrír gista fangageymslur. Sjö ökumenn teknir fyrir akstur undir áhrifum. Sjö umferðaróhöpp. Eitthvað um aðstoð vegna ölvunar. Eitthvað var um hávaða tilkynningar en hér eru helstu mál lögreglu :
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 108. Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
- Aðili handtekinn í hverfi 105 vegna gruns um líkamsárás og hótanir.
- Aðili í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 101 fyrir eignaspjöll á hraðbanka. Þá var aðilinn með fíkniefni í fórum sínum. Vistaður í þágu rannsóknar máls í fangageymslu.
- Umferðaróhapp í hverfi 103. Engin slys.
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 101 þar sem hann virti ekki stöðvunarskyldu. Ökumaður einnig grunaður um ölvun við akstur.
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 105. Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum.
- Aðili handtekinn í hverfi 101 þar sem hann var til ama. Eftir handtöku hótaði aðilinn lögreglu lífláti og var með fíkniefni í fórum sínum. Vistaður í þágu rannsóknar máls í fangageymslu.
- Aðili handtekinn í hverfi 101 þar sem hann var að veitast að fólki. Færður á lögreglustöð og fékk síðan að ganga sína leið eftir tiltal.
- Aðili í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 101 vegna gruns um líkamsárás. Aðilinn vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar máls.
- Tilkynnt þjófnað úr verslun í hverfi 200. Aðilinn ennþá á staðnum. Afgreitt með vettvangsformi.
- Umferðaróhapp í hverfi 200. Engin slys.
- Umferðaróhapp í hverfi 201. Engin slys.
- Aðili handtekinn í hverfi 201 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Þá reyndi aðilinn að hlaupa frá lögreglu en án árangurs.
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 108. Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis ásamt akstur án gildra ökuréttinda.
Umræða