Sendu Interpol bréf um tíu Íslendinga
Lögreglan í Namibíu hefur um nokkurt skeið reynt að fá upplýsingar um dvalarstað Ingvars Júlíussonar, fyrrverandi fjármálastjóra Samherja á Kýpur, og Egils Helga Árnasonar, sem var framkvæmdastjóri Namibíustarfsemi Samherja, í því skyni að fá þá framselda til Namibíu. Þetta sýna gögn sem lögð voru fram við namibískan dómstól nýlega í tengslum við rannsókn þarlendra yfirvalda á meintum mútugreiðslum og spillingu við gerð milliríkjasamnings við Angóla. Þetta kom fram í fréttum ríkisútvarpsins, ruv.is, í gærkvöld og stuðst er við skjöl sem lögð hafa verið fram fyrir dómstólum í Namibíu.
Þar segir jafnframt að á meðal skjalanna sem lögð voru fyrir yfirréttinn í höfuðborginni Windhoek sé 63 blaðsíðna eiðsvarin yfirlýsing frá Karl Patrick Cloete, rannsóknarlögreglumanni hjá namibísku spillingarlögreglunni ACC, dagsett 28. október. ,,Þar er rakið í smáatriðum hvernig félög að fullu og hluta í eigu Samherja eiga að hafa komið að fléttunni sem á endanum tryggði Samherja tugþúsunda hrossamakrílskvóta með ólögmætum hætti, að mati lögreglunnar ytra.
Segja Ingvar og Egil hafa stýrt öllum félögunum ytra
Í lok yfirlýsingarinnar segir að það sé ljóst að Ingvar Júlíusson hafi haft stjórn yfir öllum Namibíufélögum Samherja og enn fremur að Egill Helgi Árnason hafi sömuleiðis tekið við stjórnartaumunum í öllum félögum sem uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson stýrði áður, eftir að sá síðarnefndi lét af störfum. Egill Helgi hafi einnig stýrt, ásamt Ingvari, öllum félögum sem stofnuð voru ytra eftir það.
Svo segir í yfirlýsingunni: „Nampol [namibíska lögreglan] reynir nú að grafast fyrir um dvalarstað, meðal annarra, Hr. Júlíussonar og Hr. Árnasonar, í því skyni að hefja ferli við að fá þá framselda sem stjórnendur fyrirtækjanna sem frömdu brotin fyrir hönd Samherja hf.“
Sendu Interpol bréf um tíu Íslendinga
Cloete vísar svo í yfirlýsingunni til bréfs sem namibíska lögreglan sendi fulltrúa alþjóðalögreglunnar Interpol í Namibíu í maí síðastliðnum. Tilgangur bréfsins var að leita liðsinnis Interpol við að finna dvalarstað tíu Íslendinga sem tengjast Samherja, vegna þess að til stæði að fara í kyrrsetningaraðgerðir gegn þeim og fyrirtækjum sem þeir tengjast. Tekið er fram í bréfinu að þetta gæti jafnframt leitt til framsalskröfu á hendur einhverjum þeirra, ef ákveðið verði að hefja sakamálarannsókn á hendur þeim beint.
Auk Ingvars og Egils Helga nefnir namibíska lögreglan í bréfi sínu til Interpol Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, Aðalstein Helgason, sem var um skeið stjórnandi Samherja í Namibíu, Örnu Bryndísi Baldvins McClure, lögfræðing Samherja, Baldvin Þorsteinsson, son Þorsteins Más og fyrrverandi yfirmann hjá Samherja, Ingólf Pétursson, fyrrverandi fjármálastjóra Samherja í Namibíu, Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumann sem starfaði fyrir Samherja í Namibíu, og auk þess tvo starfsmenn til viðbótar sem hingað til hafa lítið komið við sögu í fréttaflutningi af Samherjamálinu.
Ingvar, Egill Helgi, Þorsteinn Már, Aðalsteinn og Arna Bryndís hafa, ásamt Jóhannesi, réttarstöðu sakbornings í rannsókn Héraðssaksóknara hér heima á Samherjamálinu, eins og fréttastofa Rúv fjallaði um í haust.“ Segir í frétt Ríkisútvarpsins.