• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 23. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Hópsýking í hrossum

ritstjorn by ritstjorn
2. desember 2022
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Matvælastofnun og Tilraunastöð HÍ á Keldum rannsaka nú óþekktan sjúkdóm sem kom upp í hópi hrossa dagana 23. – 25. nóvember síðastliðinn. Um er að ræða mjög alvarlegan sjúkdóm sem einkennist af háum hita en auk þess hefur hluti hrossanna fengið mikinn bjúg á framfætur, brjóst og jafnvel haus. Alls hafa 13 hross veikst af 30 hrossa hópi. Þar af hafa 6 hross drepist en önnur eru mögulega á batavegi.

Veikin kom samtímis upp í hópi útigangshrossa á Suðurlandi og hrossum frá sama eiganda sem tekin voru á hús á höfuðborgarsvæðinu þann 21. nóvember. Þar á meðal er eitt hross sem kom úr öðru umhverfi og annað sem hafði verið í húsinu í tvo mánuði.

Ekki hafa bæst við ný tilfelli frá 25. nóvember og ekkert bendir til þess að um bráðsmitandi sjúkdóm sé að ræða. Til öryggis hefur verið gerð krafa um ítrustu smitvarnir, bæði í kringum hesthúsið og útigangshrossin.

Takmarkaðar vísbendingar hafa komið fram um orsök sjúkdómsins enn sem komið er, en rannsóknin er enn í fullum gangi. Sjúkdómurinn er rannsakaður sem afmörkuð hópsýking eða eitrun af einhverju tagi. Bakteríuræktun hefur engu skilað enn sem komið er. Niðurstöður krufninga eru enn í vinnslu. Sýni hafa verið send erlendis til veirurannsókna en hraðpróf sem framkvæmd eru á Keldum hafa verið neikvæð. Umhverfissýni eru í rannsókn hjá Matís.

Hestamenn eru hvattir til að vera vakandi fyrir einkennum í hrossum og hafa samband við starfandi dýralækna ef þeir telja ástæðu til.

Discussion about this post

  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Greiða hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Reyndist ekki vera leiðindaskarfur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?