• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 6. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Úr sóttkví í friðlýsingu!

ritstjorn by ritstjorn
3. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Friðlýsti háhitasvæðið Gjástykkis gegn orkuvinnslu

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði friðlýsingu Gjástykkis í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Þetta er fyrsta friðlýsing háhitasvæðis í verndarflokki rammaáætlunar. Með friðlýsingunni er Gjástykki verndað gegn orkuvinnslu yfir 50MW í varmafli en þar voru uppi hugmyndir um jarðvarmavirkjun. Friðlýsingin nær ekki til annarra þátta en orkuvinnslu.
,,Kæru vinir. Þá er ég laus úr sóttkví. Ég hef verið heilsuhraustur og mér líður vel. Mig langar til að þakka ykkur fyrir hlýjar kveðjur, mér þykir mjög vænt um þær.

Það er magnað að fylgjast með því hvað Íslendingar standa þétt saman á þessum tímum. Við komumst í gegnum þetta í sameiningu! Hugur minn er hjá þeim sem eru veik, aðstandendum þeirra og öllum sem halda grunnþjónustunni okkar gangandi. Þið eruð hetjur.
Ég vann heima í sóttkvínni, sem var lítið mál. Þar sat ég marga fjarfundi og sinnti fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum. Svo náði ég meira að segja að halda upp á afmælið mitt með góðum göngutúr og frábærum mat!
Í dag mætti ég aftur á skrifstofuna og þá skellti ég mér beint í að friðlýsa háhitasvæði Gjástykkis gegn orkuvinnslu. Friðlýsingin markar tímamót í friðlýsingum á Íslandi því þetta er fyrsta háhitasvæðið í verndarflokki rammaáætlunar sem er friðlýst. Rammaáætlun var samþykkt á Alþingi árið 2013 og kveður á um hvar megi mögulega virkja og hvar ekki.
Gjástykki þykir einstætt á heimsvísu út frá jarðfræðilegu sjónarmiði. Á svæðinu er að mestu leyti nýbrunnið og lítt gróið hraun sem runnið hefur á nútíma, m.a. frá Kröflueldum 1975-1984. Gjástykki er hluti af eldstöðvakerfi Kröflu sem hefur verndargildi á heimsmælikvarða.
Þessi friðlýsing er hluti af sérstöku átaki í friðlýsingum sem ég setti af stað þegar ég varð ráðherra. Gjástykki er sjötta friðlýsingin sem ég geng frá og margar fleiri framundan. Til dæmis Goðafoss og Geysir!“ Segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/04/01/Gjastykki-fridlyst-gegn-orkuvinnslu/?fbclid=IwAR3fNb0SUHD2MvU_vTDelDzRRhrWt86GxaeC9Sivp0mHdD4PgehUGfPZ95s
  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?