• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 2. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hagnaður Arionbanka um sex milljarðar á ársfjórðungi

Heildareignir námu 1.341 milljörðum króna í lok mars

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

​Hagnaður Arion banka nam 5.818 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eiginfjár var 12,7%

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2022

  • Hagnaður Arion banka á 1F 2022 var 5.818 milljónir króna, samanborið við 6.039 milljónir króna á 1F 2021
  • Arðsemi eiginfjár á fjórðungnum var 12,7% samanborið við 12,5% á 1F 2021
  • Hreinn vaxtamunur var 3,1%, samanborið við 2,7% á 1F 2021
  • Tekjur af kjarnastarfsemi jukust um 15,9% samanborið við 1F 2021
  • Kostnaðarhlutfallið á fjórðungnum var 42,7% samanborið við 46,2% á 1F 2021
  • Arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans námu 26,8 milljörðum króna
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 22,9% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,1% þann 31. mars 2022
  • Samningur um sölu á Valitor framlengdur til 1. júní 2022. Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á lúkningu viðskiptanna hefur Rapyd greitt Arion banka 10 milljónir Bandaríkjadala í viðbótargreiðslu, sem færð verður til tekna við samningslok

Heildareignir námu 1.341 milljörðum króna í lok mars, samanborið við 1.314 milljarða króna í árslok 2021. Lán til viðskiptavina jukust um 4,3% frá áramótum. Hækkunin er aðallega í lánum til fyrirtækja sem hækkuðu um 8% frá árslokum 2021. Heildar eigið fé nam 173 milljörðum króna í lok mars. Eigið fé lækkaði vegna arðgreiðslu og endurkaupa á hlutabréfum bankans, samtals að fjárhæð 26,8 milljarðar króna, en afkoma tímabilsins kemur til hækkunar á eigin fé.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 22,9% í lok mars og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,1%. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 22,5% í lok mars og hlutfall eiginfjárþáttar 1 18,8%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

„Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er góð og í takti við okkar fjárhagslegu markmið. Góður vöxtur var í tekjum bankans af kjarnastarfsemi, ekki síst vaxtatekjum sem aukast um 9% frá síðasta ársfjórðungi. Við finnum vel að það er góður gangur í íslensku efnahagslífi og eru fjölmörg spennandi verkefni í pípunum. Útlánavöxtur var umtalsverður á fjórðungnum og þá sérstaklega þegar kemur að lánum til fyrirtækja. Við höldum ótrauð áfram á þeirri braut að styrkja okkur sem millilið á markaði.

Á síðustu tveimur árum hefur Arion banki veitt um 36 milljörðum króna í lán til fyrirtækja sem síðar hafa verið seld til stofnanafjárfesta eins og lífeyrissjóða. Slíkt gefur okkur aukið svigrúm til frekari lánveitinga til fyrirtækja og eykur fjölbreytileika í eignasafni lífeyrissjóða. Það hefur einnig verið ánægjulegt að sjá umsvif bankans á Norðurslóðum aukast verulega á milli ára, eða um 87%. Við ætlum að auka þessi umsvif enn frekar og leggjum sérstaka áherslu á atvinnugreinar þar sem við höfum á undanförnum árum byggt upp góða þekkingu á og reynslu af.

Við sjáum góðan vöxt í iðgjöldum hjá Verði en afkoma félagsins ber þess merki að veturinn var þungur hvað veðurfar varðar sem leiddi til aukningar í fjölda tjóna. Samstarf Arion banka og Varðar er alltaf að aukast. Markmið okkar er að sækja fram af krafti á tryggingamarkaði og efla þjónustu við viðskiptavini okkar. Arion appið er í dag ein öflugasta þjónustuleið landsins og fyrir viðskiptavini beggja félaga felst í því mikið hagræði að hafa á einum stað upplýsingar um reikninga, sparnað, lán, lífeyrismál og tryggingar og geta sinnt þessu öllu í appinu á einfaldan og þægilegan hátt.

Aðalfundur Arion banka, sem haldinn var í mars síðastliðnum, samþykkti arðgreiðslu að fjárhæð 22,5 milljarðar króna. Að auki keypti bankinn eigin bréf fyrir um 4,3 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Að teknu tilliti til þessa er hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 í lok ársfjórðungsins 19,1% en markmið okkar er en að það verði um 17%. Bankinn er nú sem fyrr afar vel fjármagnaður og með sterka lausa- og eiginfjárstöðu. Við erum í kjörstöðu til að styðja áfram vel við okkar viðskiptavini og íslenskt efnahagslíf.“

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Úlfar: Kerfisbreytingar drifnar áfram af vók hugmyndafræði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Leiguverð á kvóta 420.000 krónur tonnið í júlí 2022 – Kvótagreifi sem leigir frá sér kvóta borgar ekki krónu til samfélagsins

    395 deilingar
    Share 359 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?