• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 15. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samfylkingin skorar á ríkisstjórnina að grípa til raunverulegra aðgerða í Samherjamálinu

Fyrirtæki verða að starfa í sátt við samfélög, fylgja lögum og reglum og greiða fullt gjald til eigandans fyrir nýtinguna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar, haldinn á Hilton Hóteli Reykjavík 5. júní 2021, skorar á ríkisstjórnina að grípa til raunverulegra aðgerða í ljósi afhjúpana í Samherjamálinu.

Samfylkingin skorar á ríkisstjórnina að grípa til raunverulegra aðgerða í Samherjamálinu

Fundurinn ályktar að framganga Samherja gagnvart kjörnum fulltrúum, stjórnmálamönnum, fjölmiðlafólki og öðrum sem fyrirtækið telur til andstæðinga sinna, sé óafsakanleg. Frekar en að gefa út innihaldsrýra afsökunarbeiðni ættu stjórnendur fyrirtækisins að skammast sín fyrir framgöngu starfsfólks sem fylgist með ferðum fjölmiðlafólks, reynir að hafa áhrif á lýðræðislegt val í stjórn Blaðamannafélagsins og á framboðslista hjá stjórnmálaflokkum, og vandar um fyrir ráðherrum og þingmönnum sem nýta stjórnarskrárvarinn rétt sinn á Alþingi.

Hjá Samherja starfar fjöldi harðduglegs fólks, fyrirtækið hefur skapað mikil verðmæti úr þeim auðlindum sem það hefur öðlast rétt til að nýta og útvegað mörgum störf við veiðar og vinnslu víða um land. Hins vegar skortir fyrirtækið og stjórnendur þess alla auðmýkt gagnvart því að það er þjóðin sjálf sem er eigandi auðlindarinnar sem fyrirtækið hefur fengið að hagnýta.

Fyrirtæki verða að starfa í sátt við samfélög, fylgja lögum og reglum og greiða fullt gjald til eigandans fyrir nýtinguna. Komi upp grunur um lögbrot af hálfu svo umsvifamikilla fyrirtækja, er nauðsynlegt að tryggja að lögregluyfirvöld, saksóknaraembætti og aðrar eftirlitsstofnanir búi yfir nægilega rúmum fjárheimildum til að geta hafið rannsóknir án atbeina pólitískt kjörinna yfirboðara.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að bundin verði í lög vernd fyrir fjölmiðlafólk sem verður fyrir árásum af hálfu stórfyrirtækja. Eins að lög verði sett um að starfsfólk eftirlitsstofnana verði varið fyrir ásókn af því tagi sem beitt hefur verið gagnvart starfsfólki Seðlabanka Íslands.

Ekki síst telur Samfylkingin löngu tímabært að bundið verði í stjórnarskrá réttmætt eignarhald þjóðarinnar á sjávarauðlindinni og kveðið á um að einungis sé hægt að úthluta sameiginlegum gæðum á grundvelli tímabundinna réttinda sem fullt gjald komi fyrir.

Samfylkingin telur nauðsynlegt að við stjórn landsins verði valin ríkisstjórn sem er reiðubúin að standa að sókn gegn sérhagsmunum og að nýting á sameiginlegum auðlindum taki í miklu meira mæli mið af hagsmunum almennings en tíðkast hefur hjá núverandi ríkisstjórnarflokkum.

 

Ályktunin var samþykkt samhljóða.

Umræða
Share56Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Framdi sjálfsvíg eftir nauðgun

    270 deilingar
    Share 108 Tweet 68
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    286 deilingar
    Share 114 Tweet 72
  • Jólagjöfum stolið úr bílum

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Mohamed og Amir dæmdir fyrir nauðgun – með alþjóðlega vernd á Íslandi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    80 deilingar
    Share 32 Tweet 20
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?