• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 3. október 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Öndum rólega og þvoum okkur um hendurnar

ritstjorn by ritstjorn
6. mars 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Í vikunni hef ég fylgst af aðdáun með viðbrögðum okkar færasta fólks við veiruógninni. Staðföst, fumlaus og traust viðbrögð til að minnka skaðann og verja okkur sem hýsum þessa eyju. Vonandi tekst að draga úr hraða smita svo hægt sé að sinna þeim sem veikjast og innviðirnir standist þessa ágjöf. Flestir vinnustaðir, félagasamtök og opinberar stofnanir vinna að vörnum og í gær náðu aðilar vinnumarkaðarins samkomulagi ásamt stjórnvöldum um hvernig megi tryggja afkomu fólks sem þarf að fara í sóttkví. Vinnustaðir er sá vettvangur þar sem flestir hittast og til mikils að vinna að fólk virði sóttkví án þess að hafa áhyggjur af afkomu sinni. Ég fagna því samkomulaginu sem lesa má hér.
En það munu koma upp margar spurningar og nú þegar verða öll stéttarfélög á landinu vör við áhyggjur tengdar ástandinu. Með fyrrnefndu samkomulagi var greitt úr helstu viðfangsefnunum. Þrátt fyrir fáheyrt ástand í samfélaginu heldur lífið áfram og vikan var um mragt viðburðarík. Á mánudag voru kynnt frumvarpsdrög að nýjum húsaleigulögum sem munu styrkja réttindi leigjenda svo um munar. Nú heyrast raddir að lagasetningin muni hafa slæm áhrif á þá sem síst skyldi.
Þar er sleginn kunnuglegur tónn sem heyrist iðulega þegar réttarstaða þeirra sem höllum fæti standa er löguð. Ný húsaleigulög sækja fyrirmynd til annarra landa sem hefur tekist betur en okkur að vernda húsnæðisöryggi fólks. Á vettvangi ASí voru umhverfismál og jöfnuður til umfjöllunar í vikunni auk þess sem alþjóðlegur baráttudagur vinnandi kvenna (sem í raun er á sunnudaginn) var haldinn á fimmtudag með góðri umfjöllun um verkefnin framundan og endurskoðun jafnréttislaga.
Úr Karphúsinu berast svo þær fréttir að fólk situr við að finna lausnir og eru það góðar fréttir. Allir sterkir straumar til okkar fólks sem situr nú í samningaviðræðum.
Þvoið, sprittið og njótið helgarinnar,
Drífa

  • Afborganir hafa hækkað um 94%

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 750 ökumenn myndaðir við grunnskóla

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hærri stýrivextir, hærri verðbólga!

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?