• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nafn konunnar sem lést á Vopnafirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. september 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nafn konunnar sem lést í smábátahöfninni á Vopnafirði í gærmorgun var Violeta Mitul. Hún var 26 ára gömul. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ungmennafélaginu Einherja á Vopnafirði en Mitul spilaði knattspyrnu með meistaraflokki félagsins. Hún fæddist í Moldóvu árið 1997 og gekk til liðs við Einherja í vor til að spila knattspyrnu með liðinu.

Violeta Mitul

Lögregla á Austurlandi greindi frá því í gær að tilkynning hafi borist um að kona hafi fallið fram af klettum við smábátahöfnina á Vopnafirði í fyrrinótt. Hún var úrskurðuð látin þegar sjúkralið bar að garði.

Í tilkynningu frá Einherja segir að Violeta hafi gegnt lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Hún hafi verið góðhjörtuð, dugleg og brosmild.

„Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja,“ segir í tilkynningunni.

Tilkynningin frá Einherja

Það er með djúpri sorg í hjarta sem við tilkynnum um sviplegt fráfall leikmanns okkar, liðsfélaga og vinkonu, Violetu Mitul sem lést af slysförum aðfaranótt 4. september, aðeins 26 ára gömul. Samfélagið á Vopnafirði er harmi slegið.

Violeta, sem fæddist 3. apríl 1997 í Moldóvu, gekk til liðs við Einherja í vor og gegndi lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Violeta var góðhjörtuð, dugleg og brosmild. Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja.

Fjölskyldu Violetu, þeim Alexandru, Mariu, Veaceslav og Juliu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Á svo hörmulegri stundu eru engin orð eða gjörðir sem græða sárið sem missirinn skilur eftir sig en við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að létta undir með fjölskyldu og vinum sem eiga um sárt að binda á þessum sorgartímum.

Söfnunarreikningur fyrir fjölskyldu Violetu hefur verið stofnaður í nafni félagsins:

610678-0259

0178-05-000594

Ungmennafélagið Einherji

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    410 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?