• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rúmlega tífalt fleiri gistinætur á hótelum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. desember 2021
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0
Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir nóvember má ætla að gistinætur á hótelum hafi verið um 251.800 (95% öryggismörk 240.000-263.700), þar af hafi gistinætur Íslendinga verið um 53.200 (95% öryggismörk 46.100-60.300) og gistinætur útlendinga um 198.600 (95% öryggismörk 188.000-209.300).

Í nóvember 2020 voru um 23.800 gistinætur alls og hefur því heildarfjöldi gistinátta rúmlega tífaldast frá fyrra ári. Þar af má ætla að gistinætur Íslendinga hafi aukist um 226% en þær voru 16.300 á fyrra ári. Gistinætur útlendinga jukust verulega á milli ára en þær voru 7.500 í fyrra. Til frekari samanburðar má nefna að gistinætur á hótelum í nóvember 2019 voru 329.600, þar af voru gistinætur útlendinga 285.700. Gistinætur útlendinga nú virðast á hinn bóginn vera álíka margar og þær voru í nóvember 2015, þegar þær voru 181.200.

Samkvæmt sömu áætlun var rúmanýting í nóvember 2021 um 36,2% (95% öryggismörk: 34,5%-37,9%) samanborið við 5,7% í sama mánuði í fyrra og 47,7% árið 2019.

Bráðabirgðatölur fyrir október 2021 gerðu ráð fyrir að rúmnýting hefði verið um 50,9% (95% öryggismörk: 49,2%-52,5%). Þegar búið var að vinna úr öllum tölum reyndist nýtingin vera 49,2%. Í sömu útgáfu var gert ráð fyrir að gistinætur hefðu verið um 357.000 (95% öryggismörk 345.600-368.400) en endanlegur fjöldi hótelgistinátta var 360.300.

Miklar breytingar eiga sér nú stað á framboði á hótelrýmum og eykur það mjög óvissu í bráðabirgðamati á fjölda gistinátta, því er rétt að taka áætluðum bráðabirgðatölum um fjölda gistinátta á hótelum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur eru birtar.

Gistinætur

Samantekt

Hagstofa Íslands gefur út tölur um gistinætur ferðamanna á hótelum í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði 30 dögum eftir að mánuði lýkur, en þá eru skil frá hótelum vanalega um 90%. Vegna áhuga notenda á að fá tímanlegri tölur var ákveðið að nota gögn frá þeim aðilum sem skila strax eftir að tímabili lýkur til að fá fyrsta mat á það stuttu eftir lok tímabils hverjar endanlegar tölur hvers mánaðar yrðu fyrir nýtingu rúma og fjölda gistinátta á hótelum.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á stuttum tíma í ferðaþjónustunni. Svo örar breytingar ýta undir þörfina fyrir tímanlegar hagtölur en skapa einnig vandkvæði við tölfræðilega vinnslu og þarf fyrir vikið að taka bráðabirgðatölunum með fyrirvara.

Lýsing

Um 20% hótela skila inn gögnum fyrstu dagana eftir lok hvers mánaðar. Athugað var hvort þessi gögn væru nothæf fyrir fyrsta mat á nýtingu rúma og fjölda gistinátta á hótelum. Þar sem þessi hótel eru ekki valin af handahófi er þeim skipt upp eftir landsvæðum og gögnin vigtuð til að leiðrétta fyrir því.

Gögn um rúmanýtingu og fjölda gistinátta í þessum undirhópi hótela sem skila að jafnaði snemma, voru skoðuð aftur í tímann og borin saman við lokaniðurstöður fyrir hvern mánuð. Í ljós kom að hægt var að áætla rúmanýtingu og fjölda gistinátta á hótelum í hverjum mánuði með 95% öryggismörkum.

Markmið

Þessi aðferð gerir það mögulegt að áætla rúmanýtingu og fjölda gistinátta á hótelum stuttu eftir að tímabili lýkur og er ætlunin að birta þessa áætlun innan 10 daga frá lokum hvers mánaðar. Vonast er til að þessi birting á tímanlegri tölum gefi vísbendingar um þróun gistinátta nær rauntíma en ella.

Hótel bráðabirgðatölur 081221 (xlsx)

Fyrir gistináttatölfræði Hagstofunnar: Fjöldi gististaða, gesta og gistinátta (pdf)

Lýsing á aðferðafræði (enska): Fast estimates of proportions and occupancynumbers of hotels (pdf)

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?