Tæplega sextíu mál voru bókuð hjá lögreglunni á höfðuðborgarsvæðinu frá klukkan 19:00 til 05:00 og voru nánast allir fangaklefar fullir. 11 ökumenn voru stöðvaðir ýmist undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna ásamt því að nokkrir þeirra sem stöðvaðir voru höfðu fíkniefni meðferðis. Einnig virtust stór hluti þeirra sennilega verið búnir að gleyma því að þeir væru annað hvort búnir að missa ökuréttindi eða aldrei öðlast þau þegar þeir óku af stað.
Tilkynnt um mann sem var að sveifla kúbeini í allar áttir við Hagkaup í Skeifunni og virtist vera í annarlegu ástandi, engum varð þó meint af þessu háttalagi. Hann hinsvegar horfin út í myrkrið þegar lögregla kom á staðinn og fannst ekki þrátt fyrir nokkra leit.
Ölvaður ökumaður var handtekinn í Hafnarfirði eftir að hafa ekið á ljósastaur, maðurinn vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum og hann verður í skýrsluhæfu ástandi.
Lögregla hafi afskipti af ökumanni eftir smávægilegt umferðaóhapp í hverfi 111 sem reyndist undir áhrifum fíkniefna ásamt því að vera sviptur ökuréttindum. Maðurinn einnig með fíkniefni meðferðis.
Þá var maður handtekinn í Kópavogi eftir nágrannadeilur. Maðurinn fór ekki eftir fyrirmælum lögreglu ásamt því að ráðast að lögreglu þegar ræða átti við hann og var hann vistaður í fangaklefa
Ökumaður stöðvaður í hverfi 113 sem reyndist undir áhrifum fíkniefna ásamt því að hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Til að bæta gráu ofan á svart var bifreiðin ótryggð og einnig reyndi hann að villa á sér heimildi með því að gefa upp rangt nafn og framvísaði skilríkjum félaga síns.