Nú ætlar ríkisstjórn auðfyrirtækja og auðmanna enn á ný að koma skjólstæðingum sínum til bjargar. Skjólstæðingar þessarar ríkisstjórnar eru sem fyrr og hafa alltaf verið og verða það sem eftir er, auðfyrirtæki og auðmenn sem þurfa enga aðstoð.
Ég las á netinu hjá einum vel hugsandi manni að ef settir verða 100 milljarðar í að kaupa fasteignir í Grindavík þá sé verið að tala um 250.000 kr. á hvert mannsbarn í landinu (gróft reiknað). Það er engin smá upphæð en bótasjóðurinn sem var að fjárhæð um 35 milljarðar hefði dekkað um þriðjung. En ríkisstjórnin er löngu búin að tæma hann í flóttamenn og kokteilpartí (Evrópuráðsfundur, byssukaup ofl.) í boði forsætisráðherra sem kostaði bara um tvo milljarða.
Vilt þú borga glataðar kröfur auðfyrirtækja og banka sem eiga digra varasjóði til að gera það sjálf? (Höfum áður greitt þeim okurvexti)
Ef það á að verja auðfyrirtæki og auðmenn eina ferðina enn, þá þarf að ræða það mál á Alþingi. Ég vil að Grindvíkingar fái sinn eignarhlut greiddan úr sínum fasteignum og bótasjóðurinn sem búið er að tæma, hefði dugað til þess. En það verður að gæta þess að ekki renni ein króna til lánastofnanna til að greiða upp ónýtar kröfur þeirra sem þær þurfa nú að afskrifa.
Svo finnst mér það furðulegt að landsmenn séu látnir greiða fyrir varnargarð utan um Bláa lónið sem er einkafyrirtæki sem enn á ný fær peninga frá ríkinu, en umdeild greiðsla var til fyrirtækisins í Covid og á sama tíma var fyrirtækið að greiða himinháar fjárhæðir til eigenda í arðgreiðslur. Svartsengi er í eigu erlendra vogunarsjóða og fékk einnig gefins framkvæmd upp á milljarða. Það hefði kannski mátt verja Grindavík og fólkið sem býr þar, betur en þessi einkafyrirtæki?
Tveggja milljaðra partý á Íslandi – Mengandi þotur frá 46 löndum