• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tímabært fyrir atvinnulífið að hefja aðlögun að erfiðara rekstrarumhverfi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Tímabært fyrir atvinnulífið að hefja aðlögun að erfiðara rekstrarumhverfi

Það er orðið tímabært fyrir einkarekin atvinnufyrirtæki í landinu að hefja aðlögun að breyttu  og erfiðara rekstrarumhverfi. Þótt óvissa sé um launaþróun á næstu misserum og kjarasamningar í uppnámi að óbreyttu er ljóst að breytingin verður til hins verra en ekki til hins betra. Launakostnaður mun hækka. Hann mun leiða af sér aukna verðbólgu, afborganir fólks og fyrirtækja af verðtryggðum lánaskuldbindingum munu þyngjast, verðlag hækka og almenn neyzla dragast saman.
„Síldin“ er að byrja að hverfa eins og ferðaþjónustan  finnur fyrir og ástæðulaust fyrir einkafyrirtæki að bíða og sjá hvað gerist. Það eru erfiðari rekstraraðstæður framundan, hvernig sem það verður.
Hið sama á að sjálfsögðu við um opinberan rekstur, þótt það verði erfiðara að koma þeim, sem byggja þann rekstur á skattfé almennra borgara í skilning um það.

Endurreisn innviða samfélagsins eftir hrun er ekki lokið og það má ekki stöðva hana en það er ríkt tilefni til að stöðva óþarfa sóun og eyðslu í opinberum rekstri. Ríkisstjórnin ætti að byrja á því að setja á ráðningastopp í ráðuneytum og setja nýjar reglur um bifreiðahlunnindi í opinbera kerfinu. Það geta verið rök fyrir því í sumum tilvikum að ákveðnum störfum fylgi afnot af bifreiðum en þær þurfa ekki að kosta 10-15 milljónir hver með þeim auknarekstrarkostnaði sem þeim fylgir. Og þannig mætti lengi telja.
Þetta á raunar bæði við um ríki og sveitarfélög og stöku dæmi um að skilningur á þessu sé að vakna hjá einstökum sveitarfélögum.
Hinn almenni borgari getur lagt sitt af mörkum til þess að koma forráðamönnum ríkis og sveitarfélaga í skilning um þetta með þrýstingi, hvort sem er á vinnustöðum, samskiptamiðlum eða á fundum í flokksfélögum einstakra stjórnmálaflokka.
„Þau“ munu taka eftir því. “ Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritstjóri Morgunblaðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    72 deilingar
    Share 29 Tweet 18
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?