-2.2 C
Reykjavik
Sunnudagur - 26. mars 2023
Auglýsing

Lést eftir umferðarslys

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Þann 7. september síðastliðinn var lögregla kölluð til vegna alvarlegs umferðarslyss í Þingeyjarsveit. Þar hafði fjórhjól oltið þegar því var ekið eftir gömlum vegslóða, með þeim afleiðingum að ökumaðurinn, karlmaður á áttræðisaldri, slasaðist alvarlega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu lögreglunnar.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri til aðhlynningar og síðar á Landspítala háskólasjúkrahús í Reykjavík þar sem hann lést þann 9. september síðastliðinn vegna áverka sinna. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og er hún langt komin.