• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

83,41% vilja að Landsbankinn verði Samfélagsbanki

Samfélagsbankinn, Sparkassen bankarnir eiga sér sögu í Þýskalandi allt til ársins 1778

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. maí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ný skoðanakönnun sem gerð var hjá Útvarpi Sögu
Í nýrri skoðanakönnun sem gerð var hjá Útvarpi Sögu, kemur fram að 83,41% vilja að Landsbankinn verði gerður að Samfélagsbanka. Skoðanakönnunin er nánast samhljóma stórri og faglegri skoðanakönnun sem gerð var árið 2016.  Samkvæmt þeirri könnun sem var gerð síðla árs 2016 vildu um 85% íslendinga sem að svöruðu í könnun að ríkisbankarnir yrðu gerðir að Samfélagsbönkum og það var löngu áður en rannsóknarskýrsla kom út sem fletti ofan af söluferli við einkavæðingu bankanna. Samfélagsbankar hafa markaðshlutdeild sem er allt upp í 90 prósent í Þýskalandi.

Samfélagsbankinn, Sparkassen bankarnir eiga sér sögu í Þýskalandi allt til ársins 1778 þegar fyrsti bankinn var stofnaður í Hamborg

Þetta form bankarekstrar breiddist síðan út um Þýskaland, bankarnir voru einkum  í eigu sveitarfélaga.  Í kreppunni miklu urðu breytingar til þess sem ríkir enn þann dag í dag. Sparkassen bankarnir voru gerðir að sjálfseignarstofnunum sem starfa samkvæmt sérstökum lögum sem um þá gilda. Þar sem enginn á þá er bannað að selja þá, enda enginn sem getur selt þá og þeim eru settar mun strangari reglur en einkareknum bönkum á ýmsum sviðum.

Strangar reglur gilda um áhættuviðskipti, og bónusgreiðslur til starfsfólks eru bannaðar. Viðskiptavinir Sparkassen bankanna eru almenningur,  og lítil og meðalstór fyrirtæki, en slík fyrirtæki eru raunar hryggjarstykkið í þýska hagkerfinu. Þá eru Sparkassen bankarnir  skyldaðir með lögum til  að þjóna öllum jafnt, þeir geta ekki hætt starfsemi á ákveðnum svæðum á þeim forsendum að viðskiptin séu lítt eða ekki hagkvæm.

Sparkassen banki getur ekki lokað útibúum eins og íslensku bankarnir hafa gert í hagræðingarskyni. Wolfram Morales segir að hvergi í öllu Þýskalandi sé lengri leið að næsta Sparkassen útibúi en  5 – 6 kílómetrar. Almenn bankastarfsemi, móttaka innlána og veiting lána er fyrst og fremst í verkahring Sparkasse bankanna, önnur bankastarfsemi er á hendi stóru einkabankanna. Síðast en ekki síst ber Sparkassen bönkunum lagaleg skylda til að verja hagnaði sínum til verkefna á starfssvæði hvers og eins banka. Sparkassen bankarnir eru að mestu sjálfstæðar einingar sem eru samtengdar með ýmsu móti, hafa sameiginlega yfirstjórn og eitt miðlægt gagnaver. Hlutdeild Sparkassen bankanna í almennri bankastarfsemi er mikil,segir Wolfram Morales.

Vilja 85% íslendinga ennþá að ríkisbankarnir verði Samfélagsbankar eða á að einkavinavæða þúsund milljarða gróða?

Fréttatíminn : Vinsælasta fréttin í janúar 2019 – Landsbankinn verði Samfélagsbanki – ,,Almenningur er orðinn langþreyttur á vaxtaokri og spillingu í bankakerfinu''

Hagnaður Landsbankans 29 milljarðar og 14,4 milljarðar í arð til hluthafa

Umræða
Share15Tweet10
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?