• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 23. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Allt á kafi í snjó

ritstjorn by ritstjorn
15. janúar 2023
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Mynd tekin í gærmorgun í Neskaupstað þar sem drjúgt hefur snjóað svo sem sjá má. Lögregla á svæðinu hvetur ökumenn til að hreinsa vel af bílum sínum áður en lagt er af stað og tryggja að þeir séu búnir til vetraraksturs.

Veðuryfirlit
Skammt N af Jótlandi er allvíðáttumikil 970 mb lægð sem þokast NA, en 1020 mb hæð er yfir Grænlandi. Um 300 km A af Hvarfi er hægfara 1000 mb lægð sem fer SA og eyðist.
Samantekt gerð: 15.01.2023 14:29.

Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt 5-13 m/s, en 13-18 við austurströndina. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum og sums staðar skafrenningur austanlands. Frost 5 til 18 stig. Norðan 8-15 m/s á morgun, en heldur hvassara suðaustantil. Él á norðanverðu landinu, en þurrt og bjart sunnan heiða. Dregur aðeins úr frosti. Spá gerð: 15.01.2023 18:00. Gildir til: 17.01.2023 00:00.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austlæg átt, 3-8 m/s og léttskýjað. Frost 8 til 14 stig. Norðaustan 8-13 á morgun, en 13-18 á Kjalarnesi. Áfram léttskýjað og minnkandi frost.
Spá gerð: 15.01.2023 18:00. Gildir til: 17.01.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðan 8-15 m/s, en 15-23 á suðaustanverðu landinu. Víða él, en þurrt og bjart sunnan- og suðvestanlands. Frost 2 til 8 stig.

Á miðvikudag:
Norðlæg átt 8-15 austanlands en annars hægari. Skýjað með köflum og smáél við norður- og austurströndina. Talsvert frost. Stöku él vestantil um kvöldið.

Á fimmtudag:
Suðaustan 10-18, dálítil snjókoma eða slydda og hiti um eða yfir frostmarki sunnan- og vestantil. Annars hægari vindur, úrkomulítið og frost 2 til 7 stig.

Á föstudag:
Suðlæg átt og víða rigning eða slydda en lengst af þurrt norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig en um frostmark norðaustanlands. Snýst í suðvestanátt, dregur úr úrkomu og kólnar um kvöldið.

Á laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt, snjókoma eða slydda og frost 0 til 8 stig. Hlýnar með rigningu sunnan- og austanlands síðdegis.

  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Greiða hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Reyndist ekki vera leiðindaskarfur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hamingjan er lífstíll sem fólk velur sér

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?