• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ömurlegt að hafa árum saman barist fyrir áhrifum kvenna''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. september 2020
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er ósátt við gang mála á Alþingi og í stjórnkerfinu

,,Ég hafði álit á þeim báðum. Það var þá. Ekki lengur. Þessu fólki mun ég aldrei treysta til nokkurs hlutar framar. Aldrei. Þau eru mannleysur“

Það er ömurlegt að hafa árum saman barist fyrir áhrifum kvenna – með þeirri röksemd að áhrif kvenna skipti máli og muni leiða til góðs, það þurfi að breyta karllægri stjórnsemi og feðraveldishugsun með því að koma konum til valda.

En svo komast þær í stólana, og hvað gerist? Allt of margar þeirra (ekki allar en of margar) fara að aðlaga sig því sem fyrir er, taka upp sömu orðræðuna og reyna að standast samanburð við karlana á þeirra forsendum. Með öðrum orðum, þær breyta engu. Slíkar konur eru ekki þess verðar að aðrar konur veiti þeim brautargengi á forsendum mannúðar og kvenlegra stjórnarhátta.

Ef stjórnmálin eru bara sálarlaust þvaður um verkferla og heildstæðar lausnir — ef þau missa sál sína og gildi — þá eru þau einskis verð. Katrín og co — studd og rekin áfram af embættismönnum á borð við Kristínu Völundardóttur forstjóra Útlendingastofnunar — stundar þannig stjórnmál. Það er þyngra en tárum taki.

Vituð þér enn eða hvað!

Þvílíkt og annað eins dáðleysi hefur ekki lengi sést í íslenskri pólitík. Þessu fólki er ekki treystandi fyrir neinu. Barnamálaráðherrann sem svo kallar sig, á harða flótta og felur sig eins og hugleysingi á bak við dómsmálaráðherrann. Forsætisráðherrann þvaðrar um almennar leikreglur þegar bænaraugu barnanna stara á hana.

Bænaraugu barnanna sem eru hér NÚNA, en stjórnvöld ætla að reka úr landi í miðjum heimsfaraldri, á vit ótta og óöryggis, á vit hættunnar sem fjölskyldufaðirinn á yfir höfði sér. – Með þessu fólki vann ég þegar ég sat á þingi fyrir nokkrum árum.

Ég hafði álit á þeim báðum. Það var þá. Ekki lengur. Þessu fólki mun ég aldrei treysta til nokkurs hlutar framar. Aldrei. Þau eru mannleysur.

https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=10222988355167750&id=1545379063

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?