Hugleiðingar veðurfræðings
Áfram halda suðaustlægar áttir hjá okkur með vætu og þá sérstaklega um landið suðaustanvert, en úrkomulítið fyrir norðan. Í gær var stíf austanátt með suðurströndinni, en í dag dregur úr vindi þar. Hins vegar hvessir á suðvestanverðu landinu og verður nokkuð hvasst þar fram eftir degi með skúrum. Seinni partinn dregur úr vindi og á morgun verður suðaustan 5-13 m/s á landinu með skúrum eða rigningu, úrkomumest suðaustantil og á Austfjörðum. Nokkuð milt er í veðri miðað við árstíma eða um 2 til 9 stig.
Það lítur ekki út fyrir stórar breytingar hjá okkur um helgina, en spáð er suðaustanátt með vætu, sérstaklega suðaustantil, fram í næstu viku og hiti breytist lítið.
Veðuryfirlit
150 km SV af Reykjanesi er víðáttumikil 963 mb lægð sem þokast NV. Yfir Skandinavíu er 1023 mb hæð.
Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 10-18 m/s með morgninum, en heldur hvassara suðvestanlands. Skúrir, einkum suðaustantil, en úrkomulítið á Norðurlandi. Dregur smám saman úr vindi seinni partinn.
Suðaustan 5-13 m/s á morgun og skúrir, en rigning suðaustantil og á Austfjörðum. Skýjað með köflum fyrir norðan. Hiti 2 til 9 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 13-18 m/s með morgninum og skúrir. Dregur úr vindi seinni partinn. Hiti 5 til 10 stig.
Suðaustan 3-10 m/s í kvöld og á morgun og bjart með köflum, en bætir í vind annað kvöld með vætu. Hiti 2 til 7 stig.
Spá gerð: 17.11.2022 05:10. Gildir til: 18.11.2022 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðaustan 5-13 m/s og skúrir, en rigning suðaustantil og á Austfjörðum, einkum í fyrstu. Skýjað með köflum fyrir norðan. Bætir heldur í vind suðvestantil undir kvöld. Hiti 2 til 8 stig.
Á laugardag:
Vaxandi austan- og suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis, en 13-20 sunnantil. Rigning suðaustan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig, mildast með suðurströndinni.
Á sunnudag og mánudag:
Ákveðin suðaustan- og austanátt og dálítil væta af og til, en rigning suðaustanlands og á Austfjörðum. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Snýst í norðaustlæga átt með rigningu eða slyddu á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu suðvestantil. Kólnandi veður.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir stífa norðaustanátt með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum. Hiti um og yfir frostmarki.
Spá gerð: 16.11.2022 21:09. Gildir til: 23.11.2022 12:00.
Discussion about this post