• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hálftími hálfvitanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. mars 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Þetta er bara hálftími og hálftími tekur bara hálftíma“

Sara Elísa Þórðardóttir þingmaður Pírata lýsti vonbrigðum sínum með breytingar á störfum Alþingis í gær: ,,Virðulegi forseti. Hálftími hálfvitanna, hefur þessi dagskrárliður, störf þingsins, sem ég tala hér í, oft verið kallaður. Og nú, í breyttu skipulagi þingvikunnar, er hann bara einu sinni í viku í staðinn fyrir tvisvar og vil ég gera athugasemd við það.

Nýja skipulagið er jú tilraunaverkefni og hvað varðar þennan tiltekna dagskrárlið finnst mér það hafa mistekist. Jafnvel þó að fleiri þingmenn komist jú að í hvert skipti þá er það ekki nóg því að þessi dagskrárliður er að mínu mati einn sá mikilvægasti í þingdagskránni. Einu sinni í viku er ekki nóg, enda er vika í pólitík heldur betur langur tími. Í störfum þingsins fá þingmenn tækifæri til að tjá sig á eins óháðan hátt og í raun gerist hér í þingsal. Þetta er dínamískur dagskrárliður, hann getur verið ögrandi. Hann kveikir oft upp í málefnum eða hugmyndum sem annars hefðu alls ekki jafn hæglega fundið sér farveg hingað inn í þingsal. Störfin fúnkera sem stöðutékk á því sem brennur á þingmönnum hverju sinni og gefa málefnum oft ágætismöguleika á fjölmiðlaumfjöllun.

Virðulegi forseti. Hálftími hálfvitanna er að mínu mati einn vanmetnasti dagskrárliður þingsins og ekki er hann nú tímafrekur eða ófyrirsjáanlegur. Þetta er bara hálftími og hálftími tekur bara hálftíma. Hann hefur verið talaður niður og nú hef ég setið á þingi síðan í nóvember og þetta ku vera síðasta ræðan sem ég held undir þessum dagskrárlið í a.m.k. mjög langan tíma. En ég sendi hér hvatningu mína til þingheims um að standa vörð um þennan dýrmæta dagskrárlið sem störf þingsins eru, því að ég fullyrði að hann sé dýrmætur fyrir lýðræðið sjálft.“

Umræða
Share32Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    352 deilingar
    Share 141 Tweet 88
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?