Rétt fyrir klukkan fjögur í dag barst tilkynning um að kona í annarlegu ástandi hefði stolið bifreið við Sundahöfn, en brugðist var fljótt við og henni veitt eftirför uns náðist að stöðva för konunnar í Lækjargötu, nærri Vonarstræti.
Konan var handtekin og flutt á lögreglustöð, en mildi þykir að ekki hlaust slys af enda virti konan fáar ef nokkrar umferðarreglur á leið sinni. Hún ók m.a. gegn rauða ljósi og litlu mátti muna að bíll hennar lenti í árekstri við önnur ökutæki á meðan á þessum glórulausa akstri stóð.
Líkamsárás
Þá varð ungur maður fyrir líkamsárás í Kópavogi. Hann sagði tvo stráka hafa ráðist á sig og fann til eymsla í andliti og var með kúlu á hnakka. Árásaraðilar voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að.