Á vefnum Jarðfræði á Íslandi, virkni, framtíð og fortíð er umræða um hugsanlegt eldgos á Tenerife, á síðunni eru lærðir sem leiknir duglegir að fylgjast með breytingum neðan jarðar og oftar en ekki haft rétt fyrir sér varðandi hugsanleg eldgos.
Hér að neðan lýsir einn af meðlimum samfélagsins áhyggjum sínum á að hugsanlega endi kvikuinnskot og óróapúls sem hefur verið síðustu klukkutíma á eyjunni með eldgosi en Tenerife er þekkt eldgosa eyja. Á spænsku eyjunni eru ýmis eldfjöll og frægast þeirra er Teidefjall, þar sem jarðarskjálftar hafa verið undanfarna mánuði.
Stutt er síðan æfing yfirvalda sem virkjaði 1.000 manns, þar á meðal tæknimenn og sérfræðinga frá ríkisstjórninni, meðlimi neyðardeildar hersins og vísindastofnana var haldin á Tenerife. Ferðamenn á Tenerife voru þá varaðir við „hugsanlega ógnvekjandi“ eldgosa viðvörun þar sem virkjuð var stærsta viðvörunarkerfi yfirvalda, til þessa.
,,Fyrir íslendinga á Tenerife eyjunni. Það er kvikuinnskot og óróapúls í gangi þar og hefur verið síðustu klukkutíma. Þetta eru ekki jarðskjálftar sem finnast á eyjunni. Þessi langa jarðskjálftahrina þarna eykur líkunar á eldgosi í Tenerife.
Ég hef ekki næga þekkingu á jarðfræðinni þarna til þess að vita hvenær slíkt eldgos yrði eða hversu langur aðdragandi yrði að slíku eldgosi. Það er alltaf best að fylgjast með yfirvöldum og vísindamönnum á Tenerife fyrir bestu upplýsingar og breytingar á stöðu mála.“ Segir á vef jarðfræði spekúlanta.

