Rússneska rúblan hefur fallið niður í lægsta gildi í eitt ár eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Gjaldmiðillinn lækkaði í 82 rúblur gagnvart Bandaríkjadal á föstudagsmorgun í kauphöllinni í Moskvu (MOEX).
Rússar hafa sætt gríðarlegum efnahagsþvingunum síðan þeir hófu sókn í Úkraínu í febrúar 2022. Fyrr á þessu ári sögðu Rússar að hagkerfið hefði dregist saman um 2,1% árið 2022, sem er mun minna en 15% lækkun, sem spáð hafði verið.
Rúblan lækkaði einnig um 2% í 90,06 gagnvart evru á föstudagsmorgun. Kauphallarmenn sögðu að lækkunin tengist nokkrum þáttum, þar á meðal lægra olíuverði í mars sem lækkar tekjur Rússa og sölu á vestrænum fyrirtækjum í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar.
Verðmæti rúblunnar hefur ekki fallið niður á þetta stig síðan í apríl 2022, þó hún hafi verið enn lægri, strax í kjölfar innrásarinnar, þegar hún féll niður í 113 rúblur á Bandaríkjadal. Gjaldmiðillinn náði jafnvægi í júlí og fór í 50 rúblur en hefur veikst aftur síðan þá.
Vladímír Pútín forseti hafði fullyrt að efnahagslífið stæði gegn efnahagslegum refsiaðgerðum, en í síðustu viku viðurkenndi hann að viðurlögin gætu haft neikvæð áhrif á Rússland.
Hvaða refsiaðgerðum er verið að beita Rússlandi?
Bandaríkin fagna stríðsafmæli með nýjum refsiaðgerðum Rússa. Anton Siluanov, fjármálaráðherra Rússlands, sagði að nýjasta lækkunin væri tengd breytingum á inn- og útflutningi til landsins. Hann bætti við að ,,gengið sveiflaðist í takt við breyttar erlendar efnahagsaðstæður“.
Spurður hvort fólk í landinu ætti að hafa áhyggjur? Sagði hann líklegt að rúblan styrkist og að þökk því væri áframhaldandi sala rússneskrar orku á heimsmarkaði.
Seint á síðasta ári settu vestræn ríki verðþak á rússneska olíu, sem er mikil tekjulind fyrir landið. Þetta var ein af mörgum refsiaðgerðum sem ríki sem styðja Úkraínu hafa beitt. En þrátt fyrir þessar refsingar hefur rússneska hagkerfið dregist mun minna saman en spáð var og fréttaskýrendur hafa verið hissa á seiglu þess.
Á meðan orkuinnflutningur til Evrópu dróst verulega saman árið 2022, tóku kaupendur í Kína, Indlandi og víðar til við að fylla upp í tómið. Þegar hundruð vestrænna fyrirtækja drógu sig út úr Rússlandi í mótmælaskyni við innrásina, tóku rússneskir athafnamenn til við að búa til nýja samninga Rússar hafa sagt að þeir séu að laga efnahag sinn vegna refsiaðgerðanna og að þeir vonist til að hafa lokið því ferli fyrir árið 2024.