Uppfært: Maðurinn sem lýst var eftir síðdegis hefur gefið sig fram. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.
Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið johann@eyvindsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Myndin gæti vissulega verið skýrari, en klæðaburður mannsins ætti þó að geta gefið vísbendingar.