,,Eru greinilega fyrst og fremst að hugsa um vini sína í Samherja“
,,Merkilegt og algjörlega ólíðandi að Kristján Þór í félagi við Katrínu Jakobsdóttur, sé að skera niður afla til Strandveiða í ár um allt að 10%., skv. í nýrri reglugerð.
Hann og ríkisstjórnin eru greinilega fyrst og fremst að hugsa um vini sína í Samherja. Í fyrra mátti veiða 11.100 tonn af þorski plús ufsa upp á 1000 tonn. Nú á að draga 1000 tonna ufsaafla og 100 tonna karfa afla frá 11.100 tonnunum.“ Segir Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi á vef sínum um bann við frjálsum og vistvænum strandveiðum og greinilegt að hann er með puttann á púlsinum en strandveiðimenn hafa einungis mjög takmarkaðan tíma á ári til að fiska. Frelsið er nánast ekkert og dagarnir duga oft ekki til þess að standa undir rekstrinum, olíukostnaður og annar kostnaður er hár, þannig að bann við frelsi til athafna kemur niður á hundruðum heimila um allt land.
Frétt birtist í gær frá sjávarútvegsráðherra um trillukarla þar sem ráðherrann staðfestir að veiðar strandveiðimanna verði ekki gefnar frjálsar: ,,Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020. Reglugerðin er efnislega samhljóða reglugerð um strandveiðar síðasta árs að öðru leyti en því að lagaheimild ráðherra til að banna strandveiðar á almennum frídögum er ekki nýtt í þessari reglugerð. Því verður á þessari vertíð strandveiða ekki bannað að stunda veiðar á almennum frídögum.“
Trillusjómenn fá ekki frjálsra handfæraveiðar
https://gamli.frettatiminn.is/trillu-sjomenn-fa-ekki-frjalsra-handfaeraveidar/