1000 frí hótelherbergi
Hvernig léttum við kóvitbyrðina? Það er mikið talað um að nýsköpun er byggir þá á nýjum og frambærilegum hugmyndum sé einn af þeim lyklum er opna dyr að bjartari framtíð. Hér kemur einn slíkur lykill er gæti ef til vill opnað dyr hjá ferðaþjónustunni.
Hvernig væri að ríkiskassinn okkar allra lyfti aðeins lokinu og horfði til nýrra og óhefðbundinna ráða? Hugmyndin er að ríkið taki á leigu hótelherbergi víða um land og svo fengi heimurinn að vita að ferðalangar er hefðu hug á að heimsækja landið fengju – fría gistingu þar til skorið væri úr um hvort þeir væru með kóvitveiruna?
Segjum sem svo að ríkið tæki á leigu 1000 hótelherbergi í þessu skyni svo einhver tala sé nefnd. Hvert herbergi kostaði 5000 krónur á sólarhring. Ef erlendir gestir myndu fullnýta þennan kost þá væri kostnaðurinn 150 milljónir á mánuði.
Með þessu nýstárlega framtaki tæki Ísland ákveðið frumkvæði í þeirri úlfakreppu sem ferðaþjónustan hefur ratað í vegna kóvit. Ferðamönnum gæti fjölgað og ríkið fengi þennan pening jafnvel til baka með vöxtum. Og síðan væri þetta sennilega betri kynning á okkar góða landi en ýmsar dýrari markaðsherferðir.