Stóru viðskiptabankarnir þrír skiluðu allir uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung í dag.
Hagnaður Landsbankans á fjórðungnum, frá júlí til september, nam 7,9 milljörðum króna, tveimur milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. Á sama tíma hagnaðist Íslandsbanki um 6 milljarða og Arion banki um 6,1 milljarð. Ríkisútvarpið vakti athygli á málinu.
Það sem af er ári hefur Landsbankinn hagnast um 22,4 milljarða króna, umtalsvert meira en í fyrra þegar hagnaðurinn fyrstu níu mánuðum ársins nam 11,3 milljörðum. Hagnaður Íslandsbanka á árinu er 18,4 milljarðar og er á pari við árið í fyrra – og það sama gildir um Arion banka sem hefur skilað 19,5 milljarða hagnaði það sem af er ári. Samtals gerir þetta 60,3 milljarða króna hagnað fyrstu níu mánuðina.
Umræða