• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Röksemdir og skýringar skortir fyrir ákvörðun um að selja Íslandsbanka

Umdeild einkavæðing á óvissutímum - Fulltrúi BSRB á sæti í hópnum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Reynsla af einkavæðingu fjármálastofnana á Íslandi veldur mikilli tortryggni

Röksemdir og skýringar skortir fyrir þeirri ákvörðun að hefja söluferli vegna Íslandsbanka á miklum óvissutímum. Enn er óljóst hversu stóran hlut stendur til að selja og ekki er skýrt til hvaða verkefna áformað er að nýta fjármunina sem fást fyrir sölu á bankanum. Þá veldur fyrri reynsla af einkavæðingu fjármálastofnana á Íslandi tortryggni og því sérstaklega mikilvægt að ítarleg samfélagsleg umræða skapist um kosti og galla slíkrar ráðstöfunar.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri greinargerð sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif COVID-faraldursins sem birt er í dag. Hópurinn hóf störf um miðjan september og hefur frá þeim tíma sent reglulega frá sér skýrslur um áhrif COVID-kreppunnar. Fulltrúi BSRB á sæti í hópnum.

Athugasemdir við þann hraða sem einkennir ferlið og röksemdir fyrir sölu ófullnægjandi
Íslandsbanki

Auk megin niðurstöðu hópsins að skýringar og röksemdir skorti fyrir þeirri ákvörðun að hefja sölu bankans eru fjölmargar efnislegar athugasemdir gerðar við fyrirhugaða sölu. Vakin er athygli á því að aðstæður séu nú allt aðrar en þegar boðað var í stjórnarsáttmála árið 2017 að hlutur ríkisins í fjármálakerfinu yrði minnkaður. Óvissa vegna COVID-faraldursins sé enn í algleymingi og upprisa ferðaþjónustu muni að öllum líkindum tefjast með tilheyrandi óvissa fyrir íslenskt efnahagslíf og bankakerfið þar með.

Hópurinn gerir athugasemdir við þann hraða sem einkennir ferlið og telur röksemdir fyrir sölu eins og þær hafa verið kynntar af hálfu Bankasýslu ríkisins og stjórnvalda ófullnægjandi. Ástæða söluferlisins virðist öðru fremur vera að standa við gefin fyrirheit í stjórnarsáttmála og hraðinn skýrast af komandi Alþingiskosningum. Slíkar röksemdir nægja ekki til að einkavæða banka.

Hér má lesa greinargerð hópsins um áformaða sölu Íslandsbanka.

Umræða
Share9Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Lögreglan leitar manns

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?