Dómaranum í Samherjamálinu sem var höfðað vegna meintra svika, spillingar og fjárkúgunarmála Samherja í Namibíu, hefur verið falið að fara með málið fyrir dóm eftir eina viku.
Réttarhöldin ættu formlega að hefjast með málshöfðun þann 5. desember, en starfandi dómari Moses Chinhengo stjórnaði fyrri réttarhöldum yfir tíu mönnum sem ákærðir voru í málinu í Namibíu í Hæstarétti landsins. Allir ákærðu eru ennþá í gæsluvarðhaldi. Hópurinn á yfir höfði sér 40 sakamál vegna ásakana um að þeir hafi að minnsta kosti fengið 103,6 milljónir Namibíu dollara fyrir að veita Samherja kvóta í Namibíu samkvæmt fréttamiðlum.
Fjögur ár síðan Samherjaskjölin voru birt

Eftir löng orðaskipti dómara við verjendur, benti dómarinn á að núverandi ákæra ríkisins í málinu hafi verið birt ákærðu í október 2021 og að ákærðu og verjendur þeirra hefðu átt að búa sig undir réttarhöld upp frá því.
Hann staðfesti einnig að ríkið væri tilbúið fyrir réttarhöldin og ekki eftir neinu að bíða og að sex af þeim tíu sem eru ákærðir, hafi einnig gefið til kynna við dómstólinn að þeir séu „nokkuð tilbúnir“ til að halda áfram með réttarhöldin.

Dómarinn sagðist vilji að réttarhöldin myndu hefjast formlega með því að taka upp mál allra tíu ákærðu og átján fyrirtækja og sjóða sem þeir væru í forsvari fyrir. En fjögur ár eru síðan Samherjaskjölin voru birt
Við yfirheyrsluna sagði verjandinn Lucius Murorua að skjólstæðingar hans, sem eru fyrrverandi dómsmálaráðherra, Sacky Shanghala og James Hatuikulipi og Pius Mwatelulo – yrðu að fá meiri fjármuni til að greiða fyrir lögfræðinga sína. Hatuikulipi sækir um að fá lausa fjármuni sem hafa verið gerðiri upptækir. Shanghala hefur farið fram á að embætti ríkissaksóknara greiði fyrir lögfræðiaðstoð sinn og Mwatelulo hefur einnig sótt um ríkisstyrkta lögfræðiaðstoð.
,,Stærsta alþjóðlega spillingamál í sögu Íslands og í sögu Namibíu“
“IPPR Namibia vinnur nú á úttekt á áhrifum Samherjamálsins í Namibíu á mannréttindi á svæðinu. Í næstu viku verður mikilvægur viðburður vegna þeirrar vinnu í Walvis Bay. Viðburðurinn er liður í úttektavinnu vegna Samherjamálsins.
Íslandsdeild hefur undanfarin ár verið þess heiðurs aðnjótandi að starfa náið með IPPR og samtökum í Namibíu vegna sameiginlegrar vinnu samtakanna við eftirmála stærsta alþjóðlega spillingamáls í sögu Íslands og í sögu Namibíu.” Segir á vef Transparency International sem eru félagasamtök sem berjast gegn spillingu.
Fjögur ár síðan Samherjaskjölin voru birt
Fram kemur á síðu samtakanna að: ,,Fishrot hneykslið (íslenska: Samherjamálið) hafi verið afhjúpað með meira en 30 þúsund skjöl, sem lekið var, og sýndu að frá árinu 2012 hafði Samherji, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands, greitt milljónir dollara til stjórnmálamanna og samstarfsmanna þeirra í Namibíu til þess að færa fiskveiðiheilmildir frá innlendum sjávarútvegsfyrrtækjum í því skyni að bæta sinn sinn eigin hag og arðsemi.“
,,Namibíumál Samherja er stærsta einstaka spillingarmál í Namibíu og á Íslandi. Verðmæti grunsamlegra viðskipta sem Fjármálaleyniþjónusta Namibíu (Namibian Financial Intelligence Centre) tengja við starfsemi Samherja eru 650 milljónir Bandaríkjadala (95 milljarðar króna). Áhrif vegna málsins á sjávarútveg Namibíu eru skelfileg. Sama má segja um sjávarþorp og svæði sem rænd voru fiskveiðikvóta vegna aðferða Samherja. Namibískur efnahagur er svo sannarlega ekki ósnertur af starfsemi Samherja enda lagði fyrirtækið sig fram við að taka sem mest út úr hagkerfi Namibíu og skilja fátt eftir. Talið er að þúsundir sjómanna Í Namibíu hafi misst vinnuna vegna þess að starfsemi ýtti namibískum fyrirtækjum sem reyndu að spila eftir úthlutunarreglum úr kvótaröðinni. Framganga Samherja mun hafa neikvæð áhrif á lífsgæði komandi kynslóða Namibíu.“
Þremur (nú fjórum árum síðar) lifir Samherji og hrærist í refsileysi á sama tíma og byggðir í Namibíu sem gjörningar Samherja hafa bitnað á hafa engar bætur fengið og gerendurnir hafa ekki enn verið dregnir fyrir rétt. Í Namibíu verða tíu grunaðir dregnir fyrir rétt, þeirra á meðal Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og Sakeus Shanghala, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Aðalríkissaksóknari í Namibíu hefur einnig birt ákærur hendur þriggja yfirmanna Samherja, en engin viðleitni hefur verið sýnd af hálfu íslenskra yfirvalda til þess að framselja þessa menn.“
,,Hér á landi hefur engin formleg ákæra verið lögð fram á hendur íslenskum aðilum málsins. Þess í stað rannsakar lögregla blaðamenn sem segja frá Samherja, grafa undan frelsi fjölmiðla, tjáningarfrelsi og baráttu gegn spillingu. Viðbrögð íslenskra yfirvalda hafa verið kölluð „nánast vandræðaleg“ af Drago Kos, formanni vinnuhóps OECD um mútur í alþjóðlegum viðskiptum.“
,,Þetta er fullkomlega óviðunandi og grípa þarf til frekari aðgerða. Við teljum að eftirfarandi þurfi að gera:
Samherji verður að samþykkja og greiða skaðabætur ásamt því að gangast undir ferli umbóta. Í því þarf að felast
· Mat á mannréttindum og efnahagslegum áhrifum á starfsemi Samherja í Namibíu
· Fullar bætur til þeirra sem báru skaða af brotunum
· Að koma á fyrirkomulagi til að takast á við sérstök mál í byggðum heimamanna og/eða einstaklinga
Viðskiptavinir, byrgjar og meðeigendur Samherja þurfa að endurskoða fyrirkomulag viðskipta við Samherja, sérstaklega með tilliti til umhverfis-, félags og stjórnunarþátta og siðferðislegar skuldbindingar í framboðskeðjunni sem og eðlilegar væntingar almennings um sömu þætti.
Íslensk stjórnvöldu taki frumkvæði í sakamálarannsókn og beiti sér gegn spillingu sem framin er af íslenskum borgunum.
Yfirvöld í Namibíu geri frekari umbætur á stjórnunarháttum sínum sérstaklega með því að breyta lögum um auðlindir sjávar, sem gerði framgöngu Samherja mögulega, og dragi þá sem ábyrgð bera fyrir rétt eins fljótt og auðið er, þar með talda þá sem framselja þarf frá Íslandi án frekari tafa.
Ríkisstjórnir, þeirra á meðal í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Póllandi, Hollandi, Noregi og í Færeyjum beiti sér fyrir því að tryggja að áframhald verði ekki á brotum í efnahagskerfum þessara landa í krafti alþjóðlegra fjárfestinga Samherja eða í skjóli fjárfestinga félagsins í Namibíu.
Nú er tími fyrir þá sem hagsmuna hafa að gæta að gefa sig alla í baráttunni gegn spillingu og færa íbúum Namibíu réttlæti og skaðabætur.
Endar/ “
1 https://www.namibian.com.na/204285/archive-read/Financial-intelligence-flagged-Fishrot-deals-worth-N$10-billion
2 https://www.transparency.org/en/press/iceland-investigations-against-journalists-fishrot-samherji-undermine-press-freedoms-anti-corruption
3 https://mobile.twitter.com/project_lawyers/status/1539236020696322049
Eftirfarandi einstaklingar og samtök undirrita yfirlýsinguna
Peter Eigen Founder of Transparency International and Fisheries Transparency Initiative
Graham Hopwood Executive Director, Institute for Public Policy Research (IPPR), Namibia
Thor Fanndal Executive Director, Transparency International Iceland
Daniel Bruce Executive Director, Transparency International UK
David Martínez García Executive Director, Transparency International España
Lousewies van der Laan Executive Director, Transparency International Netherlands
Bodil Karlshøj Poulsen Executive Director, Transparency International Greenland
Ilia Shumanov Executive Director, Transparency International Russia
Guro Slettemark Executive Director, Transparency International Norway
Jemima Beukes Deputy Secretary General, Namibia Media Professionals Union (NAMPU)
Carola Engelbrecht Co-ordinator, CIVIC +264 (Civil Society Information Centre) Namibia
Toni Hancox Director, Legal Assistance Centre (LAC), Namibia
Naita Hishoono Executive Director, Namibia Institute for Democracy (NID)
Herbert Jauch Chairperson, Economic and Social Justice Trust (ESJT), Namibia
Mahongora Kavihuha Secretary General, Trade Union Congress of Namibia (TUCNA)
Frederico Links Chairperson, ACTION Coalition (for Access to Information), Namibia
Rinaani Musutua Representative, Basic Income Grant (BIG) Coalition, Namibia
Anna Myers Executive Director, Whistleblowing International Network (WIN)
Henri Thulliez Director, PPLAAF (Platform to Protect Whistleblowers in Africa)
Zoe Titus Director, Namibia Media Trust (NMT)
Eva Van der Merwe Executive Director, International Lawyers Project (ILP)
Nadège Buquet Executive Director, Transparency International France
Karina Carvalho Executive Director, Transparência Internacional Portugal