Seðlabankastjóri fær veglega launahækkun
Enginn þingmaður, hvorki úr stjórn né stjórnarandstöðu, hefur lagt til að laun þeirra hækki minna en lög kveða á um og Alþýðusambandið hefur hvatt til. Alþýðusambandið lagði til að launahækkun þingmanna og ráðherra færi ekki yfir 66 þúsund krónur líkt og krafa er um á almennum markaði.
Seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri og ríkissaksóknari eru einnig meðal þeirra sem hækka í launum sem og ráðherrar og forseti Íslands sem er með um fjórar milljónir í laun á mánuði, eða um fimmtíu milljónir króna á ári.
Lögum samkvæmt eiga laun æðstu embættismannna, þar á meðal þingmanna og ráðherra, að hækka 1. júlí ár hvert. Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um málið í dag.
Hæstu laun frá tveimur og upp í fjórar milljónir – Launahækkanir þingheims
Landsbankinn dæmdur – ,,Tugir milljarða sem talið er að bankarnir hafi oftekið“
Umræða