Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar andlát konu á sextugsaldri sem lést á Landspítalanum fyrr í mánuðinum. Talið að er að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti.
Rannsókn málsins miðar vel en þann 25. ágúst var kona á sextugsaldri úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Umræða