Forsætisráðuneytið í samvinnu við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands býður til málþings undir yfirskriftinni Er þörf á breytingum á dómstólakafla stjórnarskrárinnar? Málþingið fer fram í Háskólanum á Akureyri, stofu M102, þriðjudaginn 5. desember kl. 14.00-16.00 og verður auk þess í beinu streymi.
Á málþinginu verður fjallað um greinargerð Hafsteins Þórs Haukssonar, dósents við lagadeild Háskóla Íslands, um hvort þörf sé á breytingum á dómstólakafla stjórnarskrárinnar. Málþingið er annað af þremur sem haldin verða um efni greinargerða sérfræðinga sem forsætisráðherra fól að vinna um kafla stjórnarskrárinnar um mannréttindi, Alþingi og dómstóla.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur opnunarávarp og Hafsteinn Þór Hauksson fjallar um greinargerð sína um mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Þá mun Sigurður Örn Hilmarsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, flytja erindi.
Loks verða pallborðsumræður þar sem þátttakendur eru:
- Eiríkur Elís Þorláksson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík
- Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri
- Sunna Axelsdóttir, héraðsdómslögmaður
- Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins
- Logi Einarsson, þingsflokksformaður Samfylkingarinnar
- Sigmundur Davíð Gunnarsson, formaður Miðflokksins
- Fundarstjóri er Ingibjörg Ingvadóttir, aðjúnkt við lagadeild Háskólans á Akureyri.
- Greinargerð Hafsteins Þórs Haukssonar
- Hlekkur er á beint streymi frá málþinginu
Hvar er nýja stjórnarskráin? – ,,Alþingi ber að biðja þjóðina afsökunar“