• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 22. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Uppselt var á vel heppnað þorrablót Miðflokksins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þorsteinn Sæmundsson var veislustjóri

Fólk í Miðflokknum skemmti sér konunglega á árlegu þorrablóti flokksins sem fram fór í sal Blaðamannafélagsins við Síðumúla. Veislustjóri var þingmaðurinn Þorsteinn Sæmundsson.
Formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem mættur var ásamt eiginkonu sinni Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur brá á leik í ræðu sinni á blótinu. Mætti hann með útprentuð blöð límd saman þar sem var að finna slóðir á allar fréttir sem skrifaðar hafa verið um Klaustursmálið svonefnda. En þess má geta að einhver nefndi að RÚV ætti líklega metið með um 800 birtingar.
Sigmundur Davíð bregður á leik við góðar undirtektir

Sigmundur Davíð sem að oft hefur verið á milli tannana á fólki sagði m.a. frá því að sagan um það að hann væri geðveikur hefði fengið svo góðan byr undir báða vængi. Að í sögunni væri nú sagt að hann væri tilbúinn að leggjast inn á geðdeild Landspítalans, svo framarlega sem spítalinn væri á Vífilsstöðum eða Keldnaholti. Þannig gæti hann slegið tvær flugur í einu höggi og hugsanlegt væri að fólk rjúki strax til og byggi Landspítala á þeim stöðum – í þeim tilgangi að koma honum á geðdeild. Gestir skemmtu sér vel yfir gríni Sigmundar Davíðs og létt var yfir öllum gestum og góður andi í salnum.
Þröngt mega sáttir sitja en aðsóknin í miða á blótið var slík að strax varð uppselt og myndaðist langur biðlisti eftir miðum. Borðum var þjappað betur saman og fólk látið sitja á endum borða til þess að koma sem flestum fyrir.
Það er alveg ljóst að flokkurinn þarf á miklu stærra rými að halda fyrir þorrablótið að ári.
Veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson lét sig ekki vanta en Sigurður (Stormur) leiddi lista flokksins í Hafnarfirði í kosningunum í fyrra og var hann mættur á þorrablótið með Hólmfríði Þórisdóttur eiginkonu sinni. Þingmaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson mætti með unnustu sinni, Sunnu Gunnars Marteinsdóttur. Birgir Þórarinsson þingmaður var í góðum félagsskap.
Góð mæting var á þorrablótið og þingmenn og trúnaðarmenn flokksins létu sig ekki vanta frekar en hinn almenni félagsmaður. Veislugestir voru ánægðir með matinn sem að sló í gegn og stemmingin á blótinu var upp á tíu.
Snorri Þorvaldsson tók ljósmyndir af gestum þorrablótsins:
https://www.facebook.com/snorri.porvaldsson/posts/10214775224470507

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Gul viðvörun vegna veðurs

    Miðbærinn í Reykjavík undir sjávarborði samkvæmt spálíkunum

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Rætt um mikilvægi sjálfsfróunar í fermingarfræðslu – ,,Alltaf í sleik við Jesús“

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hringlandaháttur í veiðistjórnun

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

    513 deilingar
    Share 205 Tweet 128
  • Meðallaun 758.000 kr. – Yfirmenn með 2,4 milljónir

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?