Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, ber Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum þungum sökum vegna framferðis bæjarstjórnar er varða málefni Herjólfs ohf. í kjaradeilu starfsmanna í Herjólfi við bæinn. Útgerð Herjólfs ohf, sem sé í eigu bæjarins noti eigur ríkisins til að beita launafólk ofríki. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jónas sendi frá sér.
Jónas segir bæjaryfirvöld í Eyjum beiti þernur og háseta „fádæma ofríki og viðhafa vinnubrögð sem hafa ekki þekkst frá í kreppunni miklu og setningu laga árið 1938 um vinnustöðvanir. Vísað er í 18. grein þeirra laga þar sem segir: „Þegar vinnustöðvun hefur verið löglega hafin, er þeim, sem hún að einhverju leyti beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa.“
„Frá setningu laganna hefur ekki hefur verið ágreiningur um rétt launafólks til vinnustöðvana, eða í 82 ár. Nú hefur opinbert hlutafélag brotið grundvallarreglu á vinnumarkaði. Bæjarútgerðin í Eyjum brýtur grunnréttindi launafólks og notar til þess eigur ríkisins. Alvarlegra getur málið ekki verið. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hlýtur að stöðva lögleysu bæjaryfirvalda í Eyjum,“ segir í yfirlýsingunni.