• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilkynning frá aðgerðastjórn – COVID-19

Súrálsskipið sem kom í Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði með tíu smitaða af nítján manna áhöfn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Súrálsskip það sem kom í Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði þann 20. mars síðastliðinn með tíu smitaða af nítján manna áhöfn hélt í gær kl. 14 til hafs á ný.  Sótthreinsun skipsins fór fram, en áður voru allir skipverjar útskrifaðir úr sóttkví og einangrun. Þeir eru við góða heilsu og allir um borð við brottför skipsins.

Það verkefni að fyrirbyggja frekara smit eftir komu skipsins til hafnar á Reyðarfirði var ærið. Má þar nefna skipverjana sjálfa er sinntu óaðfinnanlega smitvörnum um borð, umboðsmanni skipsins sem var tilbúinn hvenær sem var að veita liðsinni og útvega bjargir, hafnarstarfs- og björgunarsveitarmönnum í Fjarðabyggð er sáu um gæslu og ekki síst hafnsögumönnum við komu og brottför skipsins, sjúkraflutningamönnum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum er skipulögðu og sáu um flutning og móttöku eins skipverja á Landspítala er þurfti sérstakrar umönnunar við og Heilbrigðisstofnun Austurlands er hafði með stjórnun verkefnisins að gera. Sér aðgerðastjórn ástæðu til að senda þessum og öðrum er að komu sérstakt hrós fyrir þá vinnu sem þarna var unnin. Vel gert.

Norræna kom á miðvikudag og þáðu fjórir farþegar frá svokölluðum rauðum svæðum gistingu í sóttvarnarhúsi á Hótel Hallormsstað. Fimm aðrir sem einnig komu af rauðum svæðum voru með gistingu á eigin vegum. Allir farþeganna 38 voru skimaðir við komu. Þeirra bíður fimm daga sóttkví og sýnataka að nýju að þeim liðnum. Niðurstöður fyrri sýnatöku liggja fyrir og voru allar neikvæðar. Farþegar fá í öllum tilfellum skriflegar og munnlegar leiðbeiningar við komu til landsins um það hvernig haga skuli sóttkví. Smávægileg vandamál hafa engu að síður komið upp gegnum tíðina og þau verið leyst jafnóðum. Ekki hefur komið til þess að þurft hafi að beita viðurlögum nema í undantekningartilfellum.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra tók gildi í gær. Helstu breytingar lúta að sóttvarnarhúsum, sóttkví og einangrun. Stjórnarráðið | COVID-19: Aðgerðir á landamærum – breytt skilyrði um dvöl í sóttkví (stjornarradid.is)

Breytingar þessar ættu ekki að hafa mikil áhrif í fjórðungnum enda snúa þær helst að ferðamönnum er koma erlendis frá. Með persónubundnum sóttvörnum gerum við okkar sem fyrr til að koma í veg fyrir smit og treystum okkar ágætu gestum til hins sama. Áfram við.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Endurgreiðir kostnað vegna sjálfsábyrgðar verði tjón á ökutæki

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tekinn af lífi á netinu og ranglega sakaður um alvarleg kynferðisbrot

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?